Hoppa yfir valmynd

Snýst um grundvallaratriði

Íslenski fáninn - mynd
Fulltrúar íslenskra stjórnvalda, Samtaka atvinnulífsins og Íslandsstofu hittu í dag fulltrúa bresku verslunarkeðjunnar Iceland Foods til að ræða skráningu á orðmerkinu „Iceland“ hjá Hugverkaréttarstofnun ESB (EUIPO). Á fundinum kom fram að Iceland Foods hafnaði því að afskrá orðmerkið „Iceland“ og kynnti tillögur sem stóðust ekki væntingar Íslands. Lagalegum aðgerðum til að ógilda skráningu orðmerkisins „Iceland“ hjá EUIPO verður því fram haldið.

Íslensk stjórnvöld líta svo á að þetta mál snúist um grundvallaratriði. Það sé ólíðandi að einkafyrirtæki eigi einkarétt á orðmerkinu „Iceland“ í öllum löndum Evrópusambandsins, enda komi það í veg fyrir að íslensk fyrirtæki og stofnanir geti skráð vöru sína með tilvísun í upprunalandið Ísland. Þetta mál hefur alþjóðlega skírskotun vegna áhrifa á vöru- og þjónustuviðskipti og munu íslensk stjórnvöld taka það upp á alþjóðavettvangi.

 

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics