Hoppa yfir valmynd

Aðvörun vegna ferða til Ísraels og Líbanon

Vegna þess ástands sem skapast hefur í Ísrael, Líbanon og á sjálfstjórnarsvæðum Palestínumanna vill utanríkisráðuneytið árétta mikilvægi þess að þeir Íslendingar sem þurfa að ferðast til þessara svæða á næstunni sýni fyllstu aðgát, fylgist með þróun mála og láti vita af ferðum sínum. Mörg ríki hafa þegar gefið út sérstakar viðvaranir til þegna sinna vegna ferðalaga til þessara svæða. Utanríkisráðuneytið mun áfram fylgjast grannt með þróun mála og gefa út frekari upplýsingar ef tilefni er til.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics