Hoppa yfir valmynd

Félagsmálaráðuneytið auglýsir styrki til félagasamtaka vegna verkefna á sviði félagsmála

Félagsmálaráðuneytið auglýsir styrki til félagasamtaka  vegna verkefna á sviði félagsmála  - mynd

Auglýst er eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum til verkefna sem heyra undir málefnasvið félagsmálaráðuneytisins. Félagasamtök sem hljóta styrki á fjárlögum eða eru með samninga við ráðuneytið eða stofnanir þess, vegna skilgreindra verkefna, geta ekki sótt um styrki af safnliðum fjárlaga fyrir sömu verkefni.

Reglur um úthlutun styrkja sem félags- og barnamálaráðherra veitir samkvæmt safnliðum fjárlaga hverju sinni.

Veittir eru styrkir til afmarkaðra verkefna sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf samkvæmt áherslum félags- og barnamálaráðherra hverju sinni. Styrkir eru ekki veittir til lengri tíma en eins árs í senn. Þá má meðal annars veita til verkefna sem felast í því að:

  • Útbúa fræðsluefni og standa fyrir fræðslustarfsemi.
  • Vera málsvari og standa vörð um hagsmuni félagsmanna.
  • Bjóða upp á stuðning og ráðgjöf.

Að þessu sinni verður lögð sérstök áhersla á verkefni sem styðja viðkvæma hópa í að takast á við margþætt áhrif og afleiðingar Covid-19 faraldursins.

Hafi umsækjandi áður fengið styrk frá félagsmálaráðuneytinu til verkefnis skal fylgja greinargerð með upplýsingum um framkvæmd þess og ráðstöfun styrkfjárins, til þess að ný umsókn verði tekin til greina.

Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 mánudaginn 9. nóvember 2020.

Umsókn sem berst eftir að umsóknarfresti er lokið verður ekki tekin til umfjöllunar.
Úthlutun fer fram eigi síðar en 1. febrúar 2021.

Sækja skal um á rafrænu formi á umsóknarvef Stjórnarráðsins.

Innskráning á mínar síður – þrjár leiðir:

  1. Auðkenning með rafrænum skilríkjum á vef Island.is.
  2. Auðkenning með Íslykli á vef Island.is.
  3. Notandi velur flipann Nýskráning og skráir sig á vefinn á kennitölu sinni, gefur upp fullt nafn, heimilisfang og netfang og ákveður síðan lykilorð.

Hafi notandi sótt um áður á Mínum síðum velur hann flipann Innskráning og skráir sig inn með einhverri ofangreindra aðferða. Undir flipanum Eyðublöð eru eyðublöð flokkuð eftir ráðuneytum og stofnunum. Undir félagsmálaráðuneytinu er umsóknareyðublaðið Styrkur af safnliðum fjárlaga 2021.

 

 

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics