Hoppa yfir valmynd

Undirritun samnings Íslands um bóluefni Moderna og viðbótarsamnings um bóluefni frá Pfizer

Ásthildur Knútsdóttir staðgengill ráðuneytisstjóra undirritar samningana við Moderna og Pfizer - myndMynd: Heilbrigðisráðuneyti

Samningur Íslands um bóluefni Moderna og viðbótarsamningur um bóluefni frá Pfizer voru undirritaðir í heilbrigðisráðuneytinu í dag. Samningurinn við Moderna tryggir Íslendingum 128.000 bóluefnaskammta og dugir fyrir 64.000 einstaklinga. Þetta er það sama og aðrar þjóðir í samstarfi Evrópuþjóða eiga rétt á sem hlutfall af mannfjölda.

Viðbótarsamningurinn við Pfizer kveður á um 80.000 bóluefnaskammta til viðbótar fyrri samningi, svo alls fáum við bóluefni sem dugir fyrir 125.000 einstaklinga frá Pfizer.

Fasa III í prófunum á bóluefni Moderna er lokið en lyfið er ekki komið með markaðsleyfi. Gert er ráð fyrir að mat Lyfjastofnunar Evrópu liggi fyrir í kjölfar fundar sem haldinn verður snemma í janúar, en mat stofnunarinnar er forsenda markaðsleyfis. Moderna áætlar að geta hafið afhendingu bóluefna á fyrsta ársfjórðungi komandi árs.

 

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics