Hoppa yfir valmynd

Framhaldsskólar geta hafið staðnám

Heilbrigðisráðherra hefur gefið út nýja reglugerð um skólastarf sem taka mun gildi frá og með 1. janúar og gilda til 28. febrúar nk. Reglugerðin tekur mið af minnisblaði sóttvarnalæknis en þar kemur fram að tillögur hans séu settar fram með þeim fyrirvara að ástand faraldursins verði ekki verra við upphaf nýrrar annar en nú er. Í samhengi við litaflokkað viðvörunarkerfi fyrir skólastarf er ráðgert að skólastarf hefjist á appelsínugulum.

Mestu breytingarnar sem felast í nýrri reglugerð snerta skólastarf í framhaldsskólum en með henni er opnað á að staðnám í framhaldsskólum geti farið fram að nýju.

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra:
„Þetta er frábært skref og ég fagna því að framhaldsskólanemar muni geta snúið aftur í skólabyggingar og stundað sitt nám í meiri nálægð og samfélagi hvert við annað. Ég treysti skólasamfélaginu til þess að vinna innan þessarar tilslökunar – sem er kærkomin á öllum skólastigum. Við munum sem fyrr gæta vel að sóttvörnum og hafa allan vara á; þetta er samvinnuverkefni okkar allra og við fylgjumst vitanlega vel með stöðunni og þróun mála.“

Helstu reglur í leikskólum:
• Reglur um hámarksfjölda gilda ekki um börn í leikskólastarfi. Hámarksfjöldi fullorðinna í rými er 20 einstaklingar.
• Tveggja metra lágmarksfjarlægð og grímuskylda gildir einungis fyrir fullorðna sem ekki geta uppfyllt nálægðarmörk.
• Blöndun er leyfð milli hólfa.
• Foreldrar, aðstandendur og aðrir utanaðkomandi skulu ekki koma inn í skólabyggingu nema brýna nauðsyn beri til og þá með andlitsgrímu.
• Sömu reglur gilda um tónlistarskólanám nemenda á leikskólaaldri.

Helstu reglur í grunnskólum:
• Hámarksfjöldi nemenda í hverju rými er 50, á öllum aldursstigum grunnskóla.
• Fjöldatakmörk fyrir fullorðna í hólfi er 20 manns og nálægðarmörk fullorðinna tveir metrar. Þar sem ekki er hægt að viðhafa nálægðarmörk eða fjöldatakmörk er grímuskylda fyrir fullorðna.
• Grunnskólanemendur eru undanþegnir nálægðarmörkum og grímuskyldu.
• Blöndun milli hópa barna innan skóla er leyfð í sundi og íþróttum. Skipulagt íþróttastarf grunnskólabarna er heimilt með eða án snertingar.
• Starf félagsmiðstöðva fellur undir viðmið um íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf.
• Sömu reglur gilda um tónlistarskólanám nemenda á grunnskóla aldri.

Helstu reglur á framhaldsskólastigi:
• Viðmiðunarfjöldi nemenda og starfsmanna í hverju rými er 30.
• Sé ekki unnt að halda 2 metra fjarlægð skulu nemendur og starfsmenn nota andlitsgrímur.
• Blöndun nemenda milli hópa er heimil í kennslu.
• Sóttvarnaráðstafanir varða framhaldsskóla, lýðskóla, framhaldsfræðslu en einnig ungmennahús sem sinna nemendum á framhaldsskólastigi.
• Sömu reglur gilda um tónlistarskólanám nemenda sem lokið hafa grunnskóla.

Helstu reglur á háskólastigi
• Hámarksfjöldi í hverju rými verði 50 manns og 2 metra nálægðarregla í gildi. Skylt verður að nota grímu ef ekki er hægt að viðhafa tveggja metra nálægðarmörk eða ef loftræsting er ekki góð.

Sjá nánar í reglugerð heilbrigðisráðherra.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics