Hoppa yfir valmynd

Afhending trúnaðarbréfs

Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra, afhenti í dag forseta Vietnam, Nguyen Minh Triet, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands i Víetnam með aðsetur í Peking.

Að athöfn lokinni var rætt um ný tækifæri í viðskiptum í kjölfar aðildar Víetnam að Alþjóðaviðskiptastofnuninni, WTO, og aukin samskipti almennt. Framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinu þjóðanna var kynnt en Víetnam býður sig fram um svipað leyti. Þátttaka Víetnam í sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna var tekin sérstaklega fyrir. Sendiherra hitti einnig að máli varautanríkisráðherra, sjávarútvegsráðherra og aðstoðar viðskiptaráðherra.



Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics