Hoppa yfir valmynd

Hægt að sækja um lokunarstyrk á vef Skattsins

Rekstraraðilar sem gert var að stöðva starfsemi sína vegna heimsfaraldurs kórónuveiru geta nú sótt um lokunarstyrk á vef Skattsins.

Lokunarstyrkir eru ætlaðir fyrirtækjum sem þurftu að stöðva starfsemi samkvæmt auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.  Þetta á til dæmis við um hárgreiðslustofur, krár, líkamsræktarstöðvar, nuddstofur, sjúkraþjálfun, skemmtistaði, snyrtistofur, húðflúrstofur, söfn, spilasali, sundlaugar og tannlækna. Stjórnvöld veita þessum aðilum styrki til að bæta upp hluta tekjufalls og hjálpa þeim að standa undir föstum kostnaði sem fallið hefur til í rekstri þeirra.

Sótt er um á þjónustuvef Skattsins, www.skattur.is.

Á vef Ísland.is er að finna upplýsingar um fjárhæðir lokunarstyrkja og skoða skilyrði þeirra og þar er einnig reiknivél þar sem hægt er að áætla upphæðir styrks. 

Nánari upplýsingar:


Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics