Hoppa yfir valmynd

Samúðarkveðja send til utanríkisráðherra Frakklands

Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra sendi í dag samúðarkveðju til Jean-Marc Ayrault, utanríkisráðherra Frakklands, vegna hinnar mannskæðu árásar í Nice í gærkvöldi.

"Það var skelfilegt að fá fregnir af fjölda óbreyttra borgara sem lét lífið við hátíðarhöld á þjóðhátíðardegi Frakklands í Nice í gær. Þessi hryllilegu voðaverk beindust að frönsku þjóðinni og á sama tíma einnig að þeim gildum sem við öll höldum í heiðri - frelsi, jafnrétti og bræðralagi.

Ég færi þér og frönsku þjóðinni mínar innilegustu samúðarkveðjur. Við hugsum til og biðjum fyrir þeim sem um sárt eiga að binda," segir Lilja í samúðarkveðjunni.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics