Hoppa yfir valmynd

Nr. 001, 9. janúar 1998: Fræðimannastyrkir NATO 1998-2000.

FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
_____________

    Nr. 001
    Fræðimannastyrkir Atlantshafsbandalagsins 1998 - 2000

    Atlantshafsbandalagið mun að venju veita nokkra fræðimannastyrki til rannsókna í aðildaríkjum bandalagsins og samstarfsríkja þess. Markmið styrkveitinganna er að stuðla að rannsóknum og aukinni þekkingu á málefnum sem snerta Atlantshafsbandalagið og er stefnt að útgáfu á niðurstöðum rannsóknanna. Gert er ráð fyrir að umsækjendur hafi lokið háskólanámi.

    Styrkirnir nema nú u.þ.b.465 þús. ísl. kr. (240 þús. belgískum frönkum) og er ætlast til að unnið verði að rannsóknum frá maí 1997 til júní 1999.

    Einnig er veittur sérstakur styrkur, Manfred Wörner styrkurinn, sem stofnað var til í minningu fyrrverandi framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Hér er um einn styrk að ræða að upphæð u.þ.b. 1.545 þús. ísl. kr. (800 þús. belgískum frönkum). Styrkur þessi er veittur viðurkenndum fræðimönnum, rannsóknarstofnunum eða reynslumiklu fólki sem starfar að fjölmiðlun.

    Umsóknir um styrki þessa skulu berast varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins eigi síðar en 15. febrúar 1998.

    Skrifstofan veitir nánari upplýsingar um styrkina og lætur í té þar til gerð umsóknareyðublöð.


    Utanríkisráðuneytið
    Reykjavík, 9. janúar 1998.

    Tags

    Contact us

    Tip / Query
    Spam
    Please answer in numerics