Hoppa yfir valmynd

Ísland gerir átta nýja loftferðasamninga

Samningur við Ekvador undirritaður

Verulegur árangur náðist í opnun nýrra markaða fyrir íslenska flugrekendur á ráðstefnu Alþjóðaflugmálastofnunarinnar um loftferðasamninga sem lauk á Balí, Indónesíu, á föstudag, en markmið hennar er að skapa aðildarríkjum stofnunarinnar vettvang til viðræðna um gerð og framkvæmd tvíhliða loftferðasamninga. 78 ríki sóttu ráðstefnuna að þessu sinni og héldu samtals 546 tvíhliða fundi.

Samninganefnd Íslands gerði átta nýja loftferðasamninga á þessari ráðstefnu. Nýju samningarnir eru við Armeníu, Búrúndí, Eþíópíu, Guyana, Máritíus, Nígeríu, Sri Lanka og Tsjad. Jafnframt var samið um breytingu á samningi við Egyptaland og um inntak og ramma áframhaldandi viðræðna við Ekvador, Nepal og Vestur-Kongó. Auk þess fundaði sendinefnd Íslands um framkvæmd gildandi samninga með Kanada, Rússlandi, Tyrklandi og Tælandi, en stefnt er að gerð nýs samnings við síðastnefnda ríkið. Þá funduðu Ísland og Noregur sameiginlega með Marokkóum mögulega aðild að loftferðasamningi Marokkó við Evrópusambandið.

Stöðugt vaxandi umsvif íslenskra flugrekenda hafa kallað á aukna áherslu á gerð tvíhliða loftferðasamninga. Misjafnt er um hversu víðtæk réttindi tekst að semja í hverju tilviki en auk gagnkvæmra heimilda til farþega- og farmflugs milli samningsríkja tekst oftast að semja um flug til og frá þriðju ríkjum og viðkomandi samningsríki. Fjöldi samninga sem Ísland hefur gert við önnur ríki nálgast nú 90.

Íslensku sendinefndina skipuðu Kristján Andri Stefánsson sendiherra, sem jafnframt var formaður, Gunnar Örn Indriðaso,n lögfræðingur í innanríkisráðuneytinu, og Kristín Helga Markúsdóttir, deildarstjóri lögfræðideildar Samgöngustofu.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics