Hoppa yfir valmynd

Íslenskir hagsmunir verði tryggðir við Brexit

Ríkisstjórnin ákvað í morgun, að tillögu Lilju Alfreðsdóttur utanríkisráðherra, að skipa ráðherranefnd um Brexit. Nefndin mun hafa yfirumsjón með vinnu hérlendra stjórnvalda vegna boðaðrar útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Auk utanríkisráðherra sitja í nefndinni forsætisráðherra, fjármála- og efnhagsráðherra, innanríkisráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Samhliða verður sérstök Brexit-eining sett á laggirnar í utanríkisráðuneytinu sem mun vinna þvert á ráðuneytið. Hlutverk hennar er að tryggja nauðsynlega samræmingu innan stjórnsýslunnar, upplýsingagjöf til Alþingis og góða samvinnu við hagaðila. Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra, mun stýra einingunni.

„Lífskjör á Íslandi ráðast að stórum hluta til af viðskiptasambandi okkar við erlendar þjóðir og hvernig okkur gengur að skapa gjaldeyristekjur fyrir þjóðarbúið. Þess vegna er mikilvægt að faglega sé staðið að málum og stjórnsýslan lagi sig að krefjandi aðstæðum sem kunna að koma upp. Bretland er eitt mikilvægasta viðskiptaland Íslands og við viljum búa okkur vandlega undir boðaða útgöngu,” segir Lilja.

Hún segir ljóst að útganga Breta úr Evrópusambandinu muni hafa víðtæk efnahagsleg og stjórnmálaleg áhrif í Evrópu. Mikilvægt sé að greina vel mögulegar sviðsmyndir, vakta framvindu mála og gæta íslenskra hagsmuna þegar fram í sækir.

„Við útilokum ekkert að svo stöddu og munum velja þær leiðir sem henta Íslandi best, eftir því sem fram vindur. Við munum vinna náið með samstarfsþjóðum okkar innan EFTA og leggja sérstaklega áherslu á gott samstarf við stjórnvöld í Noregi, enda fléttast hagsmunir ríkjanna saman á ýmsan hátt,” segir Lilja.

Fyrirkomulagið sem unnið verður eftir er eftirfarandi:

Ráðherranefnd

Stofnuð verði sérstök nefnd forsætisráðherra, utanríkisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, innanríkisráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sem hefur yfirumsjón með undirbúningi að framtíðarsamskiptum Íslands og Bretlands. Teymið hefur yfirumsjón með samráði við hagaðila og kallar eftir greiningum utanaðkomandi aðila eftir þörfum.

Ráðuneytisstjóranefnd

Nefnd ráðuneytisstjóra var komið á laggirnar um leið og niðurstaða þjóðaratkvæðisins lá fyrir og hefur hún þegar kallað eftir samráði við hagaðila. Ráðuneytisstjórum allra ráðuneyta býðst að taka þátt í störfum nefndarinnar þar sem Brexit getur haft áhrif á málaflokka sem undir öll ráðuneyti heyra.

Utanríkisþjónustan

Brexit hefur mikil áhrif á störf utanríkisþjónustunnar og er ofarlega á baugi í nær öllum samskiptum ráðherra og starfsmanna utanríkisþjónustunnar við erlend ríki. Stofnuð verður sérstök Brexit eining, sem mun halda utan um samskipti Íslands við erlend ríki og hagaðila innanlands.

Alþingi

Utanríkisráðherra og ráðuneytisstjóranefnd gerir utanríkismálanefnd grein fyrir stöðu mála með reglulegum hætti og ávallt þegar þörf er á.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics