Hoppa yfir valmynd

Ísland veitir neyðaraðstoð til Sahel-svæðisins og Suður-Súdans

Sahel
Íbúar á Sahel svæðinu

Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að veita 100 þúsund Bandaríkjadölum, eða um 13 milljónum íslenskra króna, til neyðaraðstoðar Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) á Sahel-svæðinu og í Suður-Súdan, en þar er talin yfirvofandi hætta á hungursneyð og ófriði.

Neyðarástandið á Sahel-svæðinu í vesturhluta Afríku nær til Búrkína Fasó, Tsjad, Gambíu, Malí, Máritaníu, Níger og Senegal. Orsök þess má rekja til samverkandi áhrifa þurrka, hás kornverðs og jarðvegseyðingar, sem bæst hafa við viðvarandi fátækt og viðkvæmni samfélaganna á svæðinu.

Í Suður-Súdan er yfir helmingur þjóðarinnar (4,7 milljónir manna) í hættu vegna slæmrar uppskeru og langvarandi ófriðar, en WFP hefur sett landið í hæsta áhættuflokk.

Hjálpar- og þróunarstofnanir leggja mikla áherslu á, að alþjóðasamfélagið bregðist skjótt við, áður en ástandið versnar til muna. Þær undirstrika að alþjóðasamfélagið læri af reynslunni frá Sómalíu frá því í fyrra, en þá var ekki brugðist af nægilegri skyndingu við hættumerkjum um yfirvofandi hungursneyð.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics