Hoppa yfir valmynd

Viðtalstímar sendiherra Íslands í London

Nr. 057

FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu



Utanríkisráðuneytið býður fyrirtækjum, samtökum, stofnunum og einstaklingum viðtalstíma við sendiherra Íslands til þess að ræða hagsmunamál sín erlendis, viðskiptamöguleika og önnur málefni þar sem utanríkisþjónustan getur orðið að liði.

Þorsteinn Pálsson, sendiherra Íslands í London, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu mánudaginn 10. júní n.k. kl. 14 til 16. Umdæmi sendiráðsins nær einnig til Grikklands, Hollands, Indlands, Írlands, Maldíveyja, Nepal og Nígeríu.

Nánari upplýsingar og tímapantanir eru veittar í síma 560-9900.



Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 6. júní 2002


Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics