Hoppa yfir valmynd

Viðtalstímar forseta Íslendingadagsins í Kanada

Nr. 060

FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu



Tim Arnason forseti Íslendingadagsins í Kanada er í heimsókn á Íslandi dagana 10. - 18. júní í boði forsætisráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins.

Listamönnum, kórum, leikhópum og öðrum þeim sem áhuga hafa á Íslendingadeginum, sem jafnan er haldinn hátíðlegur í Gimli fyrstu helgina í ágúst, er boðið að hafa samband við Tim Arnason en hann verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu fimmtudaginn 13. júní n.k. kl. 10 til 12. Þessu er ekki síst beint til þeirra sem áhuga hefðu á að koma fram eða taka þátt í hátíðarhöldum Íslendingadagsins að ári.

Nánari upplýsingar og tímapantanir í síma 545 9900.



Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 10. júní 2002


Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics