Hoppa yfir valmynd

Viðtalstímar sendiherra Íslands

Nr. 071

FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu


Utanríkisráðuneytið býður fyrirtækjum, samtökum, stofnunum og einstaklingum viðtalstíma við sendiherra Íslands til þess að ræða hagsmunamál sín erlendis, viðskiptamöguleika og önnur málefni þar sem utanríkisþjónustan getur orðið að liði.

Ólafur Egilsson, sendiherra Íslands í Peking, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu þriðjudaginn 9. júlí n.k. kl. 13 - 16. Umdæmi sendiráðsins nær einnig til Ástralíu, Indónesíu, Mongólíu, Norður-Kóreu, Nýja-Sjálands, Suður-Kóreu, Taílands og Víetnam.

Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra Íslands í Washington, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu miðvikudaginn 10. júlí n.k. kl. 10:30 - 12. Umdæmi sendiráðsins nær einnig til Argentínu, Brasilíu, Chile, Gvatemala, Kostaríka, Kólumbíu, Mexíkó, Níkaragva, Perú, Úrúgvæ og Venesúela.

Þorsteinn Ingólfsson, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu miðvikudaginn 10. júlí n.k. kl. 14 - 16. Sendiskrifstofan gegnir hlutverki sendiráðs gagnvart Bahamaeyjum, Barbadoseyjum, Grenada og Kúbú.

Hjálmar W. Hannesson, sendiherra Íslands í Kanada, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu fimmtudaginn 11. júlí n.k. kl. 10 - 12.

Benedikt Jónsson, sendiherra Íslands í Moskvu, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu þriðjudaginn 16. júlí n.k. kl. 14 - 16. Umdæmi sendiráðsins nær einnig til Armeníu, Aserbaídsjan, Georgíu, Moldóvu, Túrkmenistan og Úsbekistan.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 545 9900 þar sem tímapantanir eru einnig skráðar.



Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 2. júlí 2002


Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics