Hoppa yfir valmynd

Ræðisskrifstofa opnuð í Nagano

Nr. 073

FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu


Nýlega var opnuð ræðisskrifstofa í borginni Nagano í Japan en þar hefur ekki verið íslenskur ræðismaður áður. Var Soichiro Yoshida skipaður kjörræðismaður Íslands með ræðisstigi þ. 4. júlí s.l., en hann er forstjóri og aðaleigandi fjölskyldufyrirtækis í Nagano, Yoshida & Company. Yoshida er jafnframt ræðismaður allra hinna Norðurlandanna þar í borg. Heimilisfang hinnar nýju ræðisskrifstofu er:

5-1-18 Nakagosho,
Nagano City, Nagano Pref.
380-0935 Japan

Sími: +81 (26) 223-0011
Fax: +81 (26) 227-8008
Netfang: [email protected]



Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, Reykjavík, 9. júlí 2002.


Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics