Hoppa yfir valmynd

Unnið að stofnun Norðurslóða-viðskiptaráðs

Fulltrúar Viðskiptaráðs Íslands, Norðurslóðanets Íslands og utanríkisráðuneytisins skrifuðu á miðvikudag undir viljayfirlýsingu um stofnun Norðurslóða-viðskiptaráðs. Ráðið mun vinna, í samræmi við stefnu Íslands í málefnum norðurslóða, að því að byggja upp viðskiptasamstarf ríkja á svæðinu og búa þannig í haginn að Íslendingar geti keppt um þau atvinnutækifæri sem verða til í kjölfar aukinna efnahagsumsvifa á norðurslóðum.

Norðurslóða-viðskiptaráðið verður rekið í svipaðri mynd og önnur millilandaviðskiptaráð og er því ætlað að tengja saman fyrirtæki um allt land sem hagsmuni hafa af auknum umsvifum á norðurskautssvæðinu og að stuðla að upplýsingagjöf og upplýstri umræðu um málefni norðurslóða. Auk þess mun ráðið leggja sig fram um að starfa með stjórnvöldum, háskóla- og fræðasamfélaginu og áhugasömum aðilum til að samþætta vinnu og ýta undir ábatasama en ábyrga nýtingu væntanlegra atvinnutækifæra á norðurslóðum til lengri tíma litið fyrir íslenskt atvinnulíf og samfélagið í heild.

Með framtakinu skapast mikilvægur samstarfsvettvangur íslensks atvinnulífs og aðila með víðtæka þekkingu á málefnum norðurslóða og alþjóðlegt tengslanet. Stefnt er að stofnfundi Norðurslóða-viðskiptaráðsins um miðjan maí næstkomandi þar sem m.a. verður kjörin stjórn yfir ráðið til að vinna málið áfram.

Viljayfirlýsinguna má nálgast hér

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics