Hoppa yfir valmynd

Fundir utanríkisráðherra með ráðamönnum í Úganda

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra átti í heimsókn sinni til Úganda fundi með ráðamönnum í Kampala. Á fundi með aðstoðarutanríkisráðherra Úganda, Sam Kutesa, var ástand mála í norðurhluta landsins rætt og vonir stjórnvalda um að flóttamenn geti sem fyrst snúið aftur til heimkynna sinna. Utanríkisráðherra Úganda þakkaði Íslendingum fyrir hversu vel hefur tekist til með þróunarsamvinnu landanna og minntist sérstaklega á hversu gagnlegt skólamáltíðarverkefni Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna væri. Hann þekkti af eigin raun, sem fyrrverandi menntamálaráðherra, hversu erfitt væri að fá börn í skólana. Skólamáltíðir stuðli að því að fjölga börnum í skólum landsins, ekki síst stúlkum, sem annars nytu ekki menntunar.

Ráðherra greindi starfsbróður sínum frá ferðinni til Pader héraðs fyrr í heimsókninni og voru rædd þau vandamál sem fólk þessa hrjáða svæðis eiga við að stríða. Utanríkisráðherra spurði starfsbróður sinn sérstaklega um ástand mála á Karamoja svæðinu, en frumbyggjar þar eiga nú í erjum hver við annan, nágranna sína og stjórnarherinn.

Ráðherra átti einnig fund með fjölda kvenna sem eru í Samtökum frumkvöðlakvenna í Úganda, en sumar þeirra höfðu fengið þjálfun í frumkvöðlafræðum við Háskólann í Reykjavík á síðasta ári. ÞSSÍ og fjárfestinagastofa Úganda hafa nýlega hafið þriggja ára samstarfsverkefni sem kallast Átak í frumkvöðlafræðslu og eru þessi samtök kvenna meðal þátttakenda í verkefninu. Konurnar reka allar fyrirtæki af ýmsu tagi og var þeim tíðrætt um hversu hamlandi takmarkaður aðgangur þeirra að lánsfé væri. Undir þetta tók félagsmálaráðherra Úganda á fundi með ráðherra og lagði til að sett væri á fót verkefni í samvinnu við Íslendinga sem styrkti konur í atvinnurekstri.

Ráðherra fundaði ennfremur með ráðherra jafnréttis-, atvinnu- og félagsmála, Syda N.M. Bbumba. Ráðherrarnir ræddu fyrst og fremst málefni kvenna í Úganda og á Íslandi og, eins og áður sagði, stöðu kvenna í atvinnurekstri. Félagsmálaráðherrann lagði mikla áherslu á hversu vel hefði tekist til með þau fullorðinsfræðsluverkefni sem íslensk stjórnvöld, ÞSSÍ, styrkja á Kalangala eyjum og víðar.

Utanríkisráðherra hitti í ferð sinni einnig Rosette Nabuuma, framkvæmdastjóra Kertabarna, sem Erla Halldórsdóttir, setti á fót árið 2001. Stofnunin veitir stúlkubörnum skjól, sem annars væru á götunni, og kennir þeim ýmislegt handverk, m.a. kertagerð. Ágóðinn af sölu kertanna rennur til stofnunarinnar, sem einnig er styrkt af velgjörðarmönnum á Íslandi og ÞSSÍ.

Utanríkisráðherra fór á fund forseta Úganda í gær, Yoveri Kaguta Museveni. Ræddu þau sögu og menningu og þjóðanna. Forsetinn þakkaði sérstaklega þá aðstoð sem íslensk stjórnvöld veita íbúum Kalangala eyjanna. Utanríkisráðherra greindi forseta frá áhrifaríkri heimsókn hennar til Pader héraðs. Forseti Úganda sýndi nýtingu jarðvarma á Íslandi mikinn áhuga og greindi utanríkisráðherra honum frá gagnsemi jarðvarmanýtingar á Íslandi og þeim athugunum sem ÞSSÍ hefur gert í samstarfi stjórnvöld í vesturhluta Úganda, sem lofa góðu. Í því samhengi ræddi ráðherra Háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi í jarðvarma og fiskveiðum, sem útskrifað hafa fjölda nemenda frá Úganda.

Heimsókn utanríkisráðherra til Úganda lauk í dag með heimsókn til Kalangala eyjanna, þar sem íslensk stjórnvöld styrkja byggðaþróunarverkefni, auk verkefna á sviði útgerðar og fullorðinsfræðslu. Í för með ráðherra til eyjanna var aðstoðarráðherra jafnréttis- og félagsmála og þingmaður svæðisins. Í för sinni vígði ráðherra húsnæði fyrir fullorðinsfræðslu á svæðinu og afhenti tvö bifhjól sem notast verður við í byggðaþróunarverkefni, sem hófst nýlega á vegum ÞSSÍ, og er umfangsmesta þróunarsamvinnuverkefni Íslands og Úganda til þessa. Tilgangur verkefnisins er að styðja héraðsstjórn Kalangala til árangursríkari og skilvirkari stjórnsýslu. Verkefnið er til tíu ára.

Á morgun fer utanríkisráðherra til Suður-Afríku.



Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics