Hoppa yfir valmynd

Viðtalstímar sendiherra

Nr. 081

FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu


Utanríkisráðuneytið býður fyrirtækjum, samtökum, stofnunum og einstaklingum viðtalstíma við sendiherra Íslands til þess að ræða hagsmunamál sín erlendis, viðskiptamöguleika og önnur málefni þar sem utanríkisþjónustan getur orðið að liði.

Kornelíus Sigmundsson, sendiherra Íslands í Helsinki, verður til viðtals miðvikudaginn 14. ágúst n.k. kl. 10:00 til 12:00 . Umdæmi sendiráðsins nær einnig til Eistlands, Lettlands og Úkraínu.

Ingimundur Sigfússon, sendiherra Íslands í Tókýó, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu föstudaginn 16. ágúst n.k. 08:00 - 10:00.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 545 9900 þar sem tímapantanir eru einnig skráðar.



Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 9. ágúst 2002


Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics