Hoppa yfir valmynd

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-júlí 2012

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu sjö mánuði ársins 2012 liggur nú fyrir.

Handbært fé frá rekstri var neikvætt um 31,8 ma.kr. en var neikvætt um 64,1 ma.kr. á sama tímabili 2011. Tekjur reyndust 41,1 ma.kr. hærri en í fyrra á meðan að gjöldin jukust um 2,7 ma.kr. milli ára.

Þetta er betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í áætlunum þar sem gert var ráð fyrir að handbært fé frá rekstri yrði neikvætt um 60,2 ma.kr. Hluti af því fráviki skýrist með því að raundreifing útgjalda hefur verið önnur en gert var ráð fyrir. Inni í heimildum er jafnframt búið að taka tillit til fjárheimildastöðu frá fyrra ári.

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-júlí 2012

 

 

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics