Hoppa yfir valmynd

Utanríkisráðherrar Íslands og Litháen funda

Linas Linkevicius og Össur Skarphéðinsson

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Linas Linkevicius, utanríkisráðherra Litháen, áttu fund í Brussel í gær. Linkevicius tók við embætti í desember og undirbýr nú formennsku Litháa í Evrópusambandinu á síðari hluta árs 2013.

Allt frá því Litháen endurheimti sjálfstæði sitt hefur mikill vinskapur ríkt í samskiptum Íslands og Litháen og árangursríkt samstarf verið á ýmsum sviðum. Á fundinum ræddu ráðherrarnir tvíhliða samskipti ríkjanna, stöðu ESB aðildarviðræðna Íslands, makríldeiluna og málefni Atlantshafsbandalagsins.  

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics