Hoppa yfir valmynd

Evrópusambandið og umhverfismál

ESB-og-umhverfismal_Auglysing
ESB-og-umhverfismal_Auglysing

Utanríkisráðuneyti og umhverfisráðuneyti í samvinnu við framkvæmdastjórn ESB standa þann 25. október fyrir málþingi um ESB og umhverfismál.

 Á málþinginu verður fjallað um hvaða áhrif þátttaka Íslands í Evrópska efnhagssvæðinu (EES) hefur haft á umhverfislöggjöf landsins og hvaða breytingar hugsanleg aðild að Evrópusambandinu myndi hafa í för með sér á því sviði.

Þá verður litið til hlutverks umhverfisverndarsamtaka innan ESB, fjallað um náttúruverndarlöggjöf sambandsins og heyrt af reynslu Eista sem nýlega gengu í sambandið.

Aðgangur er ókeypis og ráðstefnan er öllum opin. Skráningar skulu sendar á netfangið [email protected] fyrir 13. október.

Allir sem áhuga hafa á umhverfis- og náttúruverndarmálum er hvattir til að mæta.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics