Hoppa yfir valmynd

COVID-19: Forgangsröðun vegna bólusetningar

COVID-19: Forgangsröðun vegna bólusetningar - myndMynd: Landspítali / Þorkell

Heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerð um forgangsröðun við bólusetningu vegna COVID-19. Tilgangur reglugerðarinnar er að ákveða forgangsröðunina á grundvelli málefnalegra sjónarmiða og með eins miklum fyrirsjáanleika og mögulegt er.

Við smíði reglugerðarinnar var horft til leiðbeininga Alþjóðaheilbrigðis­málastofnunarinnar um forgangsröðun við bólusetningu vegna COVID-19 og sjónarmiða sem fram hafa komið í sambærilegri vinnu hjá nágrannaþjóðum.

Líklegt er að notuð verði fleiri en ein tegund bóluefna hér á landi. Gera má ráð fyrir að bóluefnin kunni að henta ólíkum hópum með mismunandi hætti sem getur haft áhrif á forgangsröðunina. Sóttvarnalæknir ber ábyrgð á skipulagningu og samræmingu bólusetningar, svo sem hvaða bóluefni er notað og fyrir hvaða hópa og er einnig heimilt að víkja frá forgangsröðun reglugerðarinnar ef nauðsyn ber til.

Lögð verður sérstök áhersla á að bólusetja fyrst þá einstaklinga sem eru í framlínunni í baráttunni við sjúkdóminn. Þetta á við um heilbrigðisstarfsfólk og annað starfsfólk sem starfar á bráðamóttökum og gjörgæsludeildum sjúkrahúsa, á COVID-19 göngudeild og legudeildum fyrir sjúklinga sem smitast hafa af COVID-19, heilbrigðisstarfsmenn sem framkvæmda sýnatökur vegna gruns um COVID-19 og starfsfólk hjúkrunar- og dvalarheimila. Bólusetning einstaklinga sem dvelja á hjúkrunar- og dvalarheimilum og öldrunardeildum sjúkrahúsa verður einnig í miklum forgangi.

Í reglugerðinni eru skilgreindir tíu forgangshópar. Í mestum forgangi eru tiltölulega fámennir hópar en áætlað er að í fyrstu fimm forgangshópunum séu rúmlega 20.000 einstaklingar. Í sjötta hópnum fjölgar hins vegar umtalsvert því þar er forgangsraðað þeim sem eru 60 ára og eldri. Í sjöunda hópnum eru einstaklingar með undirliggjandi langvinna sjúkdóma, í áttunda hópnum starfsfólk leik- grunn- og framhaldsskóla og tiltekið starfsfólk félags- og velferðarþjónustu, í níunda hópnum einstaklingar sem eru í viðkvæmri stöðu vegna félagslegra- og efnahagslegra aðstæðna og loks eru í tíunda hópnum allir aðrir sem óska bólusetningar, eftir því sem sóttvarnalæknir ákveður.

Ekki er gert ráð fyrir í reglugerðinni að börnum fæddum 2006 og síðar verði boðin bólusetning gegn COVID-19 nema þau hafi undirliggjandi langvinna sjúkdóma og séu í sérstökum áhættuhópi.

Reglugerðin hefur verið send Stjórnartíðindum og öðlast gildi við birtingu.

 

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics