Hoppa yfir valmynd

Mikil ánægja með samstarf og samráð vegna COVID-19 á fundi norrænna utanríkisráðherra

Fjarfundur norrænu utanríkisráðherranna á fimmtudag. - mynd

Mikilvægi norrænnar samvinnu og samráðs hefur sjaldan verið eins ljóst eins og á undanförnum vikum, þegar borgaraþjónustur utanríkisráðuneyta Norðurlandanna hafa unnið saman að verkefnum á borð við borgaraflug frá fjarlægum stöðum, þaðan sem áætlunarferðum flugfélaga hefur verið hætt. Á fjarfundi sem utanríkisráðherrar Norðurlandanna fimm áttu í gær, fimmtudag, var mikilli ánægju lýst með þá samheldni sem norrænt samstarf á sviði borgaraþjónustu hefur leitt í ljós. Gott dæmi um vel heppnað verkefni af þessu tagi var borgaraflug á vegum danskra stjórnvalda frá Líma í Perú í gær, þar sem stór hópur norrænna ríkisborgara, þar á meðal einn Íslendingur, komst áleiðis til síns heima.
„Við höfum tekist í sameiningu á við þann vanda sem norrænir ferðamenn í fjarlægum löndum hafa staðið frammi fyrir,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra um samstarf Norðurlandanna. „Það eitt að deila upplýsingum um hugsanlegar lausnir er mikilvægt en okkar samvinna hefur gengið lengra, við komum hvert og eitt fram við borgara hinna ríkjanna sem okkar eigin og eins og gefur að skilja skiptir það ekki síst máli fyrir Ísland, sem rekur fæst sendiráð á erlendri grund. Okkar fólk hefur fengið aðgang að neyðarflugi á vegum hinna Norðurlandanna og það er því óhætt að lýsa yfir sérstakri ánægju með það samstarf og samráð sem hefur átt sér stað síðustu daga og vikur.“

„Megum ekki missa sjónar á lýðræðislegum gildum“

Ráðherrarnir lýstu áhyggjum af þróun mála víða um heim, jafnvel í Evrópuríkjum, þar sem stjórnvöld hafa fengið aukin völd til að bregðast við COVID-19 heimsfaraldrinum. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir ástæðu til að hafa áhyggjur af þessari þróun. „Þótt stjórnvöld víða um heim, þar á meðal hér á landi, hafi gripið til fordæmalausra aðgerða, til dæmis á sviði efnahagsmála, þá megum við ekki missa sjónar á þeim lýðræðislegu gildum og mannréttindum sem við þurfum ávallt að hafa í heiðri. Ástandið sem uppi er núna er tímabundið og á ekki að gefa kjörnum stjórnvöldum ástæðu til að auka úr hófi fram völd sín og áhrif,“ segir Guðlaugur Þór.


Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics