Hoppa yfir valmynd

Samningalota 21-25. september 2014

Áttunda samningalota um aukið frelsi í þjónustuviðskipum var haldin í Genf dagana 21.-25. september 2014. Þetta er fjórða samningalotan þar sem umræðunum er skipt í sérfræðingahópa eftir köflum.

Til umfjöllunnar í lotunni voru textadrög um för þjónustuveitenda (Mode 4), fjármálaþjónustu, upplýsinga- og fjarskiptatækni (Telecommunications), rafræn viðskipti (E-commerce) og staðgreiningu (localization), innlendar reglur og gagnsæi (domestic regulation and transparency), flutninga (sjó, loft og á vegum), fagþjónustu (professional services) og hraðpóstþjónustu (competitive delivery services). Einnig var fjallað um megintexta samningsins og tvær nýjar textatillögur voru kynntar, annarsvegar um opinber innkaup (ESB), og hinsvegar umhverfisþjónusta (Kanada). Þá kynnti Tyrkland tillögu að viðauka um heilbrigðistengda þjónustu (Health related services).

Ísland heldur áfram þátttöku sinni í þremur hagsmunahópum: Vinir orkuþjónustu (Ísland og Noregur stýra), vinir sjóflutninga (Noregur stýrir) og áhugahópur um Professional Services (Ástralía stýrir).

Næsta samningalota verður haldin dagana 1-5. desember í Genf.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics