Hoppa yfir valmynd

Forsætisráðherra opnaði alþjóðlega ráðstefnu um #Metoo

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra á #metoo ráðstefnunni - myndBIG

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, opnaði alþjóðlega ráðstefnu um #metoo sem nú stendur yfir í Hörpu. Yfir 800 manns taka þátt í ráðstefnunni og um áttatíu fyrirlesarar stíga í pontu.

Í ávarpi sínu fjallað forsætisráðherra um tilurð #metoo-hreyfingarinnar á Íslandi en einnig í alþjóðlegu samhengi. Hún lagði sérstaka áherslu á mikilvægi þess að mæta þeim veruleika sem konur af erlendum uppruna afhjúpuðu í tengslum við #metoo. Huga þurfi að samspili kyns, kynþáttar og stéttar í tengslum við mismunun og áreitni, en sú umfjöllun er meðal lykilviðfangsefna ráðstefnunnar. Þá sagði forsætisráðherra að hlusta þyrfti eftir þeim röddum sem ekki hafa heyrst í umræðunni og nefndi til að mynda fatlaðar konur, konur í vændi og konur í láglaunastörfum.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra:

„Ég notaði jafnframt tækifærið í ræðu minni til að þakka öllum þeim konum sem hafa lagt #metoo-hreyfingunni lið. Öllum þeim konum sem sögðu ég líka, hvort sem þær sögðu það opinberlega eða í lokuðum hópum. Við stöndum í þakkarskuld við þessar konur, sem og allar þær konur sem söfnuðu saman frásögnum og birtu þær ásamt kröfu um réttlátara samfélag. Þessi ráðstefna verður vonandi til að þétta raðirnar í mannréttindabaráttunni, heima sem að heiman.“

Ráðstefnan er liður í formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni og er skipulögð í samvinnu við RIKK – rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands. Nú í haust verða tvö ár liðin frá því að #MeToo-bylgjan hófst árið 2017 þegar konur um allan heim greindu frá kynferðislegu ofbeldi og kynbundinni og kynferðislegri áreitni.

  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 1
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 2

Tags

5. Jafnrétti kynjanna

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics