Hoppa yfir valmynd

Afhending trúnaðarbréfs

Benedikt Ásgeirsson, sendiherra, afhenti 30. október forseta Moldóvu, Vladimir Voronin, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Moldóvu með aðsetur í Moskvu. Sendiherra átti einnig fundi með Andrei Stratan, utanríkisráðherra landsins, og embættismönnum þar sem tvíhliða samskipti Íslands og Moldóvu voru rædd. Hann hitti einnig forstöðumenn skrifstofu Alþjóðabankans og OSCE í Kisínev og heimsótti skrifstofu Actavis þar.



Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics