Hoppa yfir valmynd

Guðlaugur Þór tók upp mál Jóns Þrastar

Guðlaugur Þór Þórðarson og Simon Coveney - myndUtanríkisráðuneytið
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hitti í morgun utanríkisráðherra Írlands, Simon Coveney, á fundi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf og tók upp við hann mál Jóns Þrastar Jónssonar, sem leitað er í Dublin.

Þakkaði Guðlaugur Þór sýnda velvild írsku þjóðarinnar sem tók virkan þátt í leit um liðna helgi og gott samstarf lögregluyfirvalda. Írski utanríkisráðherrann þekkti prýðilega til málsins, enda vakið mikila athygli á Írlandi, og tók málaleitan Guðlaugs Þórs vel. Sagði Coveney lögregluyfirvöld kappkosta að varpa ljósi á málið og hét áframhaldandi samvinnu og upplýsingamiðlun.

Ráðherrarnir ræddu einnig mikilvægi þess að efla tvíhliða samstarf Íslands og Írlands, enda þjóðirnar nánar og næstu nágrannar. Samvinna á sviðum afvopnunar, sjávarútvegs og í málefnum norðurslóða kom einnig til umræðu á fundi ráðherrana.
 
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 1

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics