Hoppa yfir valmynd

Heildarútgjöld ríkissjóðs innan fjárheimilda á fyrsta ársfjórðungi ársins 2016

Heildarútgjöld ríkissjóðs á fyrsta ársfjórðungi 2016 voru innan fjárheimilda að því er fram kemur í ársfjórðungsuppgjöri sem sýnir stöðu fjármála á fyrsta ársfjórðungi hjá einstökum ríkisaðilum í A-hluta ríkissjóðs með hliðsjón af veittum fjárheimildum. Meirihluti fjárlagaliða er innan fjárheimilda á fyrstu þrem mánuðum ársins.

Heildarútgjöldin námu 177 ma.kr. á tímabilinu og voru innan fjárheimilda sem nemur 5,7 ma.kr án tillits til fjárheimildastöðu frá fyrra ári. Fjárheimildastaða fyrra árs kemur ekki fram í þessu uppgjöri þar sem ríkisreikningur ársins 2016 hefur ekki verið birtur. Í uppgjöri annars ársfjórðungs verður tekið tillit til fjárheimildastöðu fyrra árs.

Samtals eru 217 fjárlagaliðir með útgjöld innan fjárheimilda ársins, alls 9,8 ma.kr. Þar af eru 137 fjárlagaliðir með meira en 10% afgang af fjárheimildum, alls 7,5 ma.kr. Þeir 15 fjárlagaliðir með mestan afgang eru um 5,3 ma.kr. innan heimilda.

Þá eru 135 fjárlagaliðir með útgjöld umfram fjárheimildir ársins, samtals 4,1 ma.kr., 76 fjárlagaliðir eru með halla undir 10 m.kr. Stærstur hluti umframútgjalda skýrist af fáum liðum, umframútgjöld 15 stærstu liðanna eru um 3,1 ma.kr. og þar af eru liðir sjúkratrygginga með um 1,1 ma.kr hallarekstur á tímabilinu.

Ráðuneyti bera hvert um sig ábyrgð á því að afkoma fjárlagaliða sé í samræmi við fjárheimildir fjárlaga og að dreifing fjárheimilda innan ársins sé sem næst áætlaðri dreifingu raunútgjalda. Fjármála- og efnahagsráðuneytið leggur áherslu á að ráðuneyti grípi til aðgerða þar sem áhætta er á að ríkisaðilar eða verkefni fari fram úr heimildum fjárlaga á árinu og yfirfari liði þar sem útgjöld hafa verið minni en áætlun og dreifing fjárheimilda gerði ráð fyrir.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics