Hoppa yfir valmynd

Máflutningi í Icesave-málinu lokið

Malsvarnarteymi-Icesave-18-sept-2012
Malsvarnarteymi-Icesave-18-sept-2012

Í dag fór fram málflutningur fyrir EFTA-dómstólnum í Icesavemálinu. Réttað var í húsakynnum Verslunarráðsins í Luxembourg sökum þess að hinn reglulegi dómssalur rúmar ekki þann fjölda málflutningsmanna og áheyrenda sem búist var við.

Réttarhöldin fóru þannig fram að fyrst funduðu lögmenn aðila með dómurum málsins og síðan fluttu þeir mál sitt munnlega hver á fætur öðrum. Lögmenn Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins riðu á vaðið og tefldu fram röksemdum fyrir því að Ísland hefði brugðist skyldum sínum samkvæmt tilskipun um innstæðutryggingar og brotið gegn jafnræðisreglum þegar innstæður í íslenskum útibúum gömlu bankanna voru fluttar yfir í nýju bankana. Jafnframt var vísað til allsherjaryfirlýsinga ríkisstjórnar og ráðherra um ábyrgð á innstæðum.

Tim Ward, málflutningsmaður Íslands, tók því næst til máls. Hann andmælti harðlega öllum röksemdum og kröfum um brot Íslands. Ítarlega var farið yfir tilurð tilskipunarinnar og sýnt fram á að innstæðutryggingakerfið rís ekki undir stórfelldu bankaáfalli, hvorki á Íslandi né annars staðar. Fjarstæðukennt sé að sjóðirnir hafi yfir fjármunum að ráða sem dugi til að greiða út meirihluta innstæðna í viðkomandi landi. Í slíkum tilvikum grípi stjórnvöld ævinlega til annarra aðgerða, t.d. með því að endurskipuleggja bankakerfið. Íslensk stjórnvöld hafi gripið til þeirra aðgerða sem tækar voru og nauðsynlegar til að koma í veg fyrir heildarhrun á Íslandi. Jafnframt hafi hagur innstæðueigenda í erlendum útibúum bankanna verið tryggður með því að þeim var veittur forgangsréttur við slit og skiptameðferð gömlu bankanna.

Tim Ward mótmælti ásökunum um brot gegn jafnræðisreglu. Grundvallaratriði væri að enginn hefði fengið greitt úr íslenska innstæðutryggingakerfinu og því væri alls ekki um að ræða mismunun innan þess. ESA hefði að öðru leyti ekki útskýrt í hverju meint mismununarbrot hefði falist og að í öllu falli væru réttlætingaraðstæður til staðar í skilningi dómaframkvæmdar á sviði Evrópuréttar.

Málflutningsmenn Noregs og Liechtenstein studdu málsstað Íslands varðandi innstæðutilskipunina en Hollendingar og Bretar voru á öndverðum meiði.

Málflutningi lauk um kl. 14.00. Búist er við að dómur liggi fyrir innan 2-3 mánaða.

Raeda-Tim-Ward-18-sept-2012

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics