Hoppa yfir valmynd

Ísland leggur fram hálfan milljarð í þróun á bóluefni

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tilkynnti um framlag Íslands til sérstaks aðgerðabandalags fjölmargra ríkja, fyrirtækja og stofnana á ráðstefnu bólusetningarbandalagsins Gavi í dag.

Aðgerðabandalagið sem miðar að því að hraða þróun, framleiðslu og dreifingu á bóluefni við COVID-19 var stofnað fyrir rúmum mánuði og er markmið þess jafnframt að stuðla að sýnatökum og meðferðarúrræðum fyrir alla, óháð búsetu og efnahag.

Framlag Íslands skiptist þannig að 250 milljónir króna fara til bólusetningarbandalagsins Gavi og sama upphæð til CEPI (e; Coalition for Epidemic Preparedness Innovation) sem er samstarfsvettvangur fyrirtækja og opinberra aðila um viðbúnað gegn farsóttum.

Fjölmargar alþjóðastofnanir og sjóðir á sviði heilbrigðismála, auk Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar standa að aðgerðabandalaginu og hefur fjöldi ríkja tilkynnt um framlög til mismunandi stofnana undir hatti þess. Þannig hafa Norðmenn lofað milljarði Bandaríkjadala og Bandaríkin, Bretland, Kanada og Þýskaland lofað hundruðum milljóna Bandaríkjadala.

Forsætisráðherra lagði í ræðu sinni áherslu á jafnan aðgang allra að heilsugæslu og öruggum bóluefnum óháð kyni, efnahag og búsetu: „Jafn aðgangur að heilbrigðisþjónustu er einn mikilvægasti þáttur heilbrigðismála og tryggir grunnmannréttindi; réttinn til lífs. Bólusetning færir öllum kynslóðum tækifæri til heilbrigðrar og innihaldsríkrar ævi,“  sagði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, í upphafsávarpi sínu en hún sat jafnframt fyrir svörum á fjölmiðlafundi í lok ráðstefnunnar. 

Auk forsætisráðherra Íslands ávarpaði fjöldi þjóðarleiðtoga fjarráðstefnuna sem boðað var til af Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands. Bill Gates, stofnandi Microsoft, var jafnframt einn ræðumanna en stofnun Bill og Melindu Gates, hefur heitið 250 milljónum Bandaríkjadala til baráttunnar gegn COVID-19. Markmið Gavi ráðstefnunnar í dag var að safna samtals 7,4 milljörðum Bandaríkjadala og náðist það og gott betur því alls söfnuðust 8.8 milljarðar. 

  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 1

Tags

3. Heilsa og vellíðan
16. Friður og réttlæti

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan

16. Friður og réttlæti

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics