Hoppa yfir valmynd

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-nóvember 2015

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir janúar – nóvember 2015 liggur nú fyrir og gefur upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda. Tekjujöfnuðurinn var lítillega neikvæður en staðan er betri en gert hafði verið ráð fyrir. Innheimtar tekjur jukust um 9,4 ma.kr. milli ára en móti jukust greidd gjöld um 45,8 ma.kr. Handbært fé frá rekstri var neikvætt um 17,9 ma.kr. samanborið við jákvætt handbært fé upp á 38,6 ma.kr. 2014. Þessi viðsnúningur milli ára skýrist að stórum hluta með því að leiðrétting verðtryggðra húsnæðislána sem gjaldfærð var í lok ársins 2014 kom til greiðslu nú í byrjun árs 2015.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics