Hoppa yfir valmynd

Norræn samvinna

Greinin var birt í Fréttablaðinu, fimmtudaginn 24. janúar 2019

Ísland tekur við formennskunni í Norrænu ráðherranefndinni á spennandi tímum. Staðreyndin er sú að mjög víða geta Norðurlöndin skilað betri árangri með samstarfi, heldur en sitt í hvoru lagi. Með samstarfi sín á milli hafa Norðurlöndin náð því að vera í fremstu röð hvort sem litið er til nýsköpunar, velferðar, jöfnuðar eða jafnréttis. Norðurlöndin hafa ítrekað sýnt að með samvinnu geta þau haft slagkraft umfram þyngd enda telja þau samtals 27 milljónir íbúa og mynda 12. stærsta hagkerfi heims.

Við Íslendingar njótum góðs af þessu. Rúmlega 30 þúsund Íslendingar búa á hinum Norðurlöndunum sem samsvarar þriðja stærsta bæjarfélagi landsins. Samanlagt eru Norðurlöndin stærsta „viðskiptaland“ Íslands þegar litið til inn- og útflutnings á vörum og þjónustu. Norrænar kvikmyndir, sjónvarpsseríur, glæpasögur, tónlist, myndlist og hönnun – Ísland er þar í góðum hópi og norræna vörumerkið er sterkt. Norðurlöndin veita hvort öðru pólitíska fótfestu á óróatímum.

Ég er þeirrar skoðunar að aukin óvissa á alþjóðavettvangi hafi á vissan hátt þjappað Norðurlöndunum betur saman. Nýleg könnun um afstöðu til norræns samstarfs sýndi að mikill meirihluti íbúa vill meiri eða mun meiri samvinnu en nú er. Þó Norðurlöndin séu vitaskuld ekki sammála um allt þá eru grundvallaratriðin á hreinu: Mannréttindi, lýðræði, réttarríki og friðsamleg lausn deilumála.

Norræn samvinna er vissulega rótgróin en um leið sprelllifandi og lítur til framtíðar. Og framtíðin kallar á nýju hugsun og nýsköpun í norrænu samstarfi. Það er enginn hörgull á áskorunum. Gervigreind og vélmenni mun gjörbreyta vinnumarkaði framtíðar. Samkeppni við önnur markaðssvæði um fólk og fyrirtæki fer vaxandi. Umhverfis- og loftslagsmálin þola enga bið. Norðurlöndin standa frammi fyrir þessum breytingum og takast á við þær saman. Um leið stöndum við vörð um hefðbundnari samvinnu í þágu íbúa og hlúum að vináttu okkar og velferð.

Það er með stolti og metnaði sem Ísland gegnir formennsku í Norrænu ráðherranefndinni á árinu 2019. Á formennskuárinu leggjum við áherslu á hagsmuni ungs fólks, sjálfbæra ferðamennsku og málefni hafsins, og eigum frumkvæði að níu norrænum formennskuverkefnum á þessum sviðum. Meira um það á norden.org.

Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics