Hoppa yfir valmynd

Tvísköttunarsamningur við Sviss

undirritun tvísköttunarsamnings við Sviss.

Undirritaður hefur verið nýr samningur milli Íslands og Sviss til að komast hjá tvísköttun á tekjur og eignir.  Af hálfu Íslands undirritaði Einar Gunnarsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins samninginn en Fabrice Filliez fyrir hönd svissneska fjármálaráðuneytisins.

Í nýjum samningi felst fyrst og fremst aðlögun að gildandi stefnu ríkjanna í tvísköttunarmálum og þeim breytingum sem orðið hafa á tvísköttunarfyrirmynd OECD frá því að núgildandi samningur var undirritaður 1988.

Aðrar breytingar í hinum nýja samningi eru fyrst og fremst þær að tekinn er upp afdráttarskattur á tilteknar tegundir þóknana sem ekki er að finna i eldri samningi. Í öðru lagi eru með samningnum tekin af öll tvímæli um að lífeyrissjóðir njóti ívilnana nýja samningsins. Í þriðja lagi var sett inn ákvæði sem heimilar skattlagningu eftirlauna í greiðsluríki.

Á næstu mánuðum munu stjórnvöld vinna að fullgildingu samningsins í báðum samningsríkjum. Vonast er til að samningurinn geti komið til framkvæmda 1. janúar 2016.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics