Hoppa yfir valmynd

Nr. 066, 10. júlí 2001 Viðtalstímar sendiherra

FRÉTTATILKYNNING

frá utanríkisráðuneytinu

________




Nr. 066


Utanríkisráðuneytið býður fyrirtækjum, samtökum, stofnunum og einstaklingum viðtalstíma við sendiherra Íslands til þess að ræða hagsmunamál sín erlendis, viðskiptamöguleika og önnur málefni þar sem utanríkisþjónustan getur orðið að liði.
Jón Egill Egilsson, verðandi sendiherra Íslands í Berlín, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu mánudaginn 16. júlí n.k. kl. 10-12 eða eftir nánara samkomulagi. Umdæmi sendiráðsins nær einnig til Króatíu, Sviss og Ungverjalands.
Ólafur Egilsson, sendiherra Íslands í Peking, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu mánudaginn 23. júlí n.k. kl. 10-12 eða eftir nánara samkomulagi. Umdæmi sendiráðsins nær einnig til Ástralíu, Indónesíu, Mongólíu, Norður-Kóreu, Nýja-Sjálands, Suður-Kóreu, Taílands og Víetnam.
Sigríður Snævarr, sendiherra Íslands í París, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu föstudaginn 27. júlí n.k. kl. 10-12 eða eftir nánara samkomulagi. Umdæmi sendiráðsins nær einnig til Andorra, Ítalíu, Portúgals, San Marínó og Spánar auk þess sem það hefur fyrirsvar gagnvart Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnuninni (OECD), Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) og Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO).
Benedikt Jónsson, verðandi sendiherra í Moskvu, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu miðvikudaginn 8. ágúst n.k. kl. 10-12 eða eftir nánara samkomulagi. Umdæmi sendiráðsins nær einnig til Armeníu, Aserbaídsjan, Georgíu, Moldóvu, Túrkmenistan og Úsbekistan.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 560-9900 þar sem tímapantanir eru einnig skráðar.




Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 10. júlí 2001.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics