Hoppa yfir valmynd

Framlög úr ríkissjóði til framhaldsskóla í greiðsluvanda

Sjö framhaldsskólar sem átt hafa í greiðsluerfiðleikum hafa fengið greidd framlög sem ætlað er að mæta vandanum. Framlögin taka mið af rekstraráætlun skólanna og eru greidd út þrátt fyrir uppsafnaða skuld við ríkissjóð. Framlögin nema alls tæpum 100 milljónum króna og voru ákveðin eftir að fjármála- og efnahagsráðuneytið og mennta- og menningarmálaráðuneytið höfðu farið yfir stöðu skóla sem glíma við greiðsluvanda.

Skólarnir sjö eru Menntaskólinn á Akureyri, Kvennaskólinn í Reykjavík, Flensborgarskóli, Fjölbrautaskóli Vesturlands, Fjölbrautaskóli Suðurlands, Verkmenntaskólinn á Akureyri og Fjölbrautaskóli Snæfellinga. Samanlagður rekstrarhalli þessara skóla nam 257 m.kr. um síðustu áramót.

Í tilefni umfjöllunar um málefni framhaldsskóla vill fjármála- og efnahagsráðuneytið koma á framfæri upplýsingum um verklag sem viðhaft er vegna greiðslu framlaga til ríkisaðila.

Ríkisaðilar í A-hluta fjárlaga fá greitt rekstrarfé í samræmi við hvernig fjárveitingum þeirra er skipt niður á mánuði í Orra,fjárhagskerfi ríkisins, þegar tekið hefur verið tillit til greiddra launa.

Skipting fjárveitinga á mánuði byggir á rekstraráætlunum stofnana sem staðfestar hafa verið af hlutaðeigandi ráðuneytum. Stofnunum ber skylda til að laga rekstraráætlanir að fjárveitingu fjárlaga. Mismunur á viðskiptastöðu stofnana færist milli tímabila og hefur áhrif á upphæð útgreiðslna.

Hafi stofnanir verið reknar með halla verður viðskiptastaða þeirra neikvæð, þar sem laun eru alltaf greidd án tillits til stöðu við ríkissjóð. Þá safnast upp viðskiptaskuld sem kemur til frádráttar útgreiðslu fjárheimilda á hverjum tíma. Þetta getur leitt til þess að stofnanir fái ekki greitt rekstrarfé, líkt og hefur gerst með nokkra framhaldsskóla.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið áréttar að engin mistök hafa verið gerð hjá Fjársýslu ríkisins vegna greiðslna á rekstrarfé til framhaldsskólanna. Fjársýslan þarf sérstaka heimild fjármála- og efnahagsráðuneytis til að greiða rekstrarfé umfram heimildir hvers tímabils og er fátítt að slíkar heimildir séu gefnar.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics