Hoppa yfir valmynd

Stofnun stjórnmálasambands við Máritíus

Nr. 155/03


FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu


Mánudaginn 15. desember 2003 undirrituðu Hjálmar W. Hannesson, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum og Jagdish Koonjul, fastafulltrúi Máritíus hjá Sameinuðu þjóðunum, samkomulag um stofnun stjórnmálasambands milli Íslands og Máritíus.


Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 16. desember 2003

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics