Hoppa yfir valmynd

Greinargerð um starfsemi Lindarhvols

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur sent Alþingi greinargerð með upplýsingum starfsemi Lindarhvols ehf. og framvindu vinnu við úrvinnslu þeirra stöðugleikaeigna sem ríkissjóður fékk í sinn hlut í tengslum við nauðasamninga slitabúa fallinna fjármálafyrirtækja.

Í greinargerð þessari, sem rituð er með vísan til 6. málsl. 4. mgr. ákvæðis III til bráðabirgða við lög nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands, er gerð grein fyrir framvindu við úrvinnslu stöðugleikaeigna sem ríkissjóður fékk í sinn hlut í tengslum við nauðasamninga slitabúa fallinna fjármálafyrirtækja og hafa verið til umsýslu hjá Lindarhvoli ehf. Að auki eru veittar upplýsingar um ráðstöfun stöðugleikaframlags ásamt áætlun um framgang verkefnisins til næstu mánaða. Í ágúst sl. sendi fjármála- og efnahagsráðuneytið Alþingi upplýsingar um stofnun og starfsemi Lindarhvols ehf.  og framvindu við úrvinnslu eignanna fram til 15. júlí s.l. Skýrsla þessi gerir því grein fyrir stöðu, framgangi og áætlunum um úrvinnslu eignanna frá þeim tíma og fram í byrjun nóvember.

I. Flokkun og virði stöðugleikaeigna í upphafi

Eins og fram kom í skýrslu ráðuneytisins frá 15. ágúst sl. voru stöðugleikaeignir sem Seðlabanki Íslands veitti viðtöku á grundvelli almennra stöðugleikaskilyrða flokkaðar með eftirfarandi hætti:

  • laust fé
  • framseldar eignir
  • skilyrtar fjársópseignir
  • framlög vegna viðskiptabanka (þ.á.m. eignarhlutir).

Mat á virði stöðguleikaeigna sem gert var við framsal þeirra í janúar 2016, og byggði að mestu leyti á bókfærðu virði eignanna hjá slitabúunum sjálfum, nam alls 384,3 ma.kr.  Þar af var laust fé metið á 17,2 ma.kr., framseldar eignir á 60,4 ma.kr., skilyrtar fjársópseignir á 18,4 ma.kr.  og framlög vegna viðskiptabanka á 288,3 ma.kr. Bókfært virði stöðugleikaeigna í beinni umsýslu Lindarhvols ehf. við upphaf starfsemi félagsins þann 29. apríl sl. nam samtals kr. 58.591.639.359, sbr. eftirfarandi töflu:

Skipting stöðugleikaframlags

 

II.  Varðveisla og sala stöðugleikaeigna í umsýslu Lindarhvols ehf. frá 15. júlí 2016 til og með 4. nóvember 2016

Með hliðsjón af þeirri meginflokkun eigna sem fram kemur að framan, þ.e. að þær greinist í (1) laust fé, (2) framseldar eignir, (3) skilyrtar fjársópseignir og (4) framlög vegna viðskiptabanka, er hér að aftan gerð grein fyrir þeim eignaflokkum sem Lindarhvoll annast um. Laust fé er lagt á sérstakan reikning ríkissjóðs í Seðlabanka og Bankasýsla ríkisins fer með eignarhluta í viðskiptabönkum.

i.                    Framseldar eignir

Eins og upplýst var um í skýrslu ráðuneytisins frá því í ágúst s.l. önnuðust Ríkiskaup milligöngu um öflun tilboða frá fjármálafyrirtækjum til að selja skráðar eignir í umsýslu Lindarhvols ehf. og tilboða frá hugsanlegum ráðgjöfum í tengslum við sölumeðferð á Lyfju hf. Á grundvelli þeirra tilboða sem bárust réð Lindarhvoll ehf. Landsbankann hf. til að veita ráðgjöf við sölu skráðra eigna í umsýslu félagsins og Virðingu hf. sem ráðgjafa í tengslum við sölumeðferð á Lyfju hf.

Í samræmi við reglur Lindarhvols ehf. um umsýslu, fullnustu og sölu eigna, þar sem fram kemur að sala og ráðstöfun skuli eiga sér stað að undangengnu opnu tilboðsferli, þar sem gætt er gagnsæis og jafnræðis bjóðenda, voru á tímabilinu öll skráð hlutabréf í umsýslu Lindarhvols ehf. seld í opnu söluferli í samræmi við reglur félagsins um sölu stöðugleikaeigna með vísan til samnings þess við fjármála- og efnahagsráðuneytið. Við söluferli þeirra var í samræmi við fyrrgreindar reglur lögð áhersla á gagnsæi, hlutlægni, jafnræði og hagkvæmni. Með hagkvæmni er átt við að leitað sé hæsta verðs eða markaðsverðs fyrir eignirnar. Fjármununum hefur verið ráðstafað inn á stöðugleikareikning Ríkissjóðs Íslands í Seðlabanka Íslands lögum samkvæmt. Niðurstaðan af umsýslu félagsins á skráðum hlutabréfum var umfram bæði áætlanir félagsins og bókfært virði þeirra.

Í samræmi við ofangreindar reglur Lindarhvols ehf. var á tímabilinu allt hlutafé í Lyfju hf., sem fellur undir óskráð hlutabréf í framseldum eignum hér að ofan, auglýst til sölu í opnu söluferli. Þann 7. nóvember 2016 rann út tilboðsfrestur til að leggja fram skuldbindandi tilboð í allt hlutafé í Lyfju hf. Alls bárust fjögur skuldbindandi tilboð. Stjórn Lindarhvols ehf. greindi tilboðin ásamt Virðingu hf. sem ráðgjafa félagsins og niðurstaðan var að ganga til samninga við Haga hf. Kaupsamningur var undirritaður 17. nóvember með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins og hefðbundna áreiðanleikakönnun. Ef kaupin ganga eftir má gera ráð fyrir að greiðslur berist inn á stöðugleikareikninginn fyrri hluta ársins 2017.

Hluti af öðrum óskráðum hlutabréfum í umsýslu Lindarhvols ehf., þ.e. rekstrarfélagið Vörukaup ehf., hefur verið selt í opnu söluferli skv. fyrrgreindum reglum og við söluna var í samræmi við fyrrgreindar reglur lögð áhersla á gagnsæi, hlutlægni, jafnræði og hagkvæmni. Búist er við endanlegri niðurstöðu vegna þeirrar sölu í desember 2016. Með sölunni á Vörukaupum ehf. hafa rekstrarfélög í fullri eigu ríkissjóðs verið seld. Önnur óskráð hlutabréf verða seld í opnu söluferli og auglýst til sölu af Lindarhvoli ehf. á næstu mánuðum á grundvelli sömu reglna og áður er greint. Gera áætlanir Lindarhvols ehf. ráð fyrir að ljúka sölu á stærstum hluta þeirra í byrjun árs 2017.

Lindarhvoll ehf. fól Lánamálum ríkisins að auglýsa til sölu íbúða- og ríkisskuldabréf og skuldabréf án ríkisábyrgða og var niðurstaðan birt opinberlega þann 26. maí 2016 eins og nánar var gert grein fyrir í skýrslunni frá ágúst sl. Lindarhvoll ehf. gerði ekki ráð fyrir að eftirstöðvar af skráðum ríkisskuldabréfum í umsýslu félagsins færu aftur í söluferli heldur var beðið eftir greiðslu á gjalddaga bréfanna og barst greiðsla vegna þeirra 13. október sl. Langstærstur hluti skráðra skuldabréfa í umsýslu félagsins hafa því verið seld og er stefnt að því að það sem eftir stendur af skráðum skuldabréfum í umsýslu félagsins verði seld fyrir áramót. Með því lýkur umsýslu félagsins á þeim eignaflokki. Öllum fjármunum vegna þeirra hefur verið ráðstafað inn á stöðugleikareikning Ríkissjóðs Íslands í Seðlabanka Íslands lögum samkvæmt.

Töluvert hefur verið um uppgreiðslur á óskráðum skuldabréfum og lánaeignum í umsýslu Lindarhvols ehf. á tímabilinu. Áætlanir Lindarhvols ehf. gera ráð fyrir því að slíkar uppgreiðslur og endurgreiðslur haldi áfram á næstu misserum. Mun staðan á þeim tveimur eignaflokkum verða endurmetin í lok árs 2016 og þá er markmiðið að setja eftirstöðvar helstu óskráðra skuldabréfa ásamt helstu lánaeignum í opið söluferli. Þar mun áhugasömum aðilum verða boðið að bjóða í skuldabréfin og lánaeignirnar í heild sinni og í samræmi við verklagsreglur settar af stjórn félagsins. Áætlanir Lindarhvols ehf. miðast við að sala á þeim eignum verði að mestu lokið í byrjun árs 2017.

Nauðasamningskröfur (Glitnir Holdco ehf. og Klakki ehf.),  sem voru í umsýslu Lindarhvols ehf., og féllu undir aðrar eignir í flokknum framseldar eignir hér að ofan, fyrir utan lága kröfu í Gamla Byr Eignarhaldsfélag ehf., hafa nú verið seldar í opnu söluferli í samræmi við reglur félagsins um sölu stöðugleikaeigna. Jafnframt skal upplýst að greiðslur vegna annarra eigna sem falla undir aðrar eignir í flokknum framseldar eignir, sem getið er hér að ofan, hafa verið umtalsverðar á tímabilinu og gerir Lindarhvoll ehf. ráð fyrir að eftirstöðvar til greiðslu verði að mestu lokið fyrir árslok 2016 en þá verði aðrar eignir í þeim flokki seldar í opnu söluferli í byrjun árs 2017.

ii.                  Skilyrtar fjársópseignir

Varðandi skilyrtar fjársópseignir þá var í upphafi ekki gert ráð fyrir miklum endurgreiðslum á árinu 2016 vegna þeirra eignaflokka vegna umtalsverðs flækjustigs ásamt því að hluti þeirra er vegna kostnaðar slitabúanna við rekstur þeirra á næstu árum. Hins vegar hefur gengið betur en áætlanir gerðu ráð fyrir að endurheimta bæði varasjóði og aðrar eignir í góðri samvinnu og samstafi við slitabúin. Þegar hafa komið til greiðslur af hluta varasjóða og gert er ráð fyrir að frekari greiðslur muni berast fyrir árslok 2016 ásamt því að tekist hefur að leysa úr ágreiningsmálum varðandi aðrar eignir sem skilað hafa töluverðum fjármunum inn á stöðugleikareikninginn.

iii.                Framlag vegna viðskiptabanka

Bankasýsla ríkisins fer með eignarhluta í Íslandsbanka. Í fjármálaáætlun sem lögð var fram í vor, er ekki gert ráð fyrir sölu á eignarhlutum í bankanum og þ.a.l. ekki gert ráð fyrir ráðstöfun virðis bankans til niðurgreiðslu skulda.  Lindarhvoll ehf. gerir ráð fyrir að Kaupþing ehf. muni selja Arion banka hf. að fullu eigi síðar en í árslok 2017 og þá muni berast þær greiðslur sem ríkissjóður á rétt á á grundvelli skuldabréfs Kaupþings ehf. og afkomuskiptasamningsins við Kaupþing ehf. vegna sölu Arion banka hf.

III. Greiðsluflæði

Á tímabilinu frá því að framsal stöðugleikaeigna slitabúanna átti sér stað og fram til þess að Lindarhvoll ehf. tók formlega til starfa við undirritun samnings við fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs dags. 29. apríl 2016, á grundvelli breytinga á bráðabirgðaákvæði III, laga um Seðlabanka Íslands, nam greiðsluflæði undirliggjandi stöðugleikaeigna til þess dags, sem lagt var inn á stöðugleikareikning Ríkissjóðs Íslands í Seðlabanka Íslands, samtals kr. 37.441.360.641.

Greiðsluflæði stöðugleikaeigna frá því að Lindarhvoll ehf. tók við umsýslu þeirra með samningnum dags. 29. apríl 2016 til og með 15. júlí 2016 nam samtals kr. 19.290.867.036. Ofangreindir fjármunir voru lagðir jafnóðum inn á stöðugleikareikning Ríkissjóðs Íslands í Seðlabanka Íslands lögum samkvæmt. Innstæða á stöðugleikareikningnum þann 15. júlí 2016, að teknu tilliti til þeirra tveggja útgreiðslna sem fjallað var um í skýrslu ráðuneytisins dags. 15. ágúst sl. og námu samtals 51.000.000.000, var samtals kr. 5.732.227.677.

Greiðslur vegna stöðugleikaeignanna á tímabilinu frá 15. júlí 2016 til og með 4. nóvember 2016 námu samtals kr. 15.425.913.246. Því hafa greiðslur vegna stöðugleikaeignanna frá stofnun Lindarhvols ehf. til 4. nóvember 2016 numið samtals kr. 34.716.780.282.

IV.  Niðurstöður og samantekt

Greiðslur fjármuna inn á stöðugleikareikning Ríkissjóðs Íslands í Seðlabanka Ísland hafa verið umtalsverðar frá því að framsal stöðugleikaeignanna átti sér stað á grundvelli stöðugleikasamninga við slitabú fallinna fjármálafyrirtækja í upphafi árs 2016 og hafa verið töluvert umfram upphaflegar væntingar.  Samtals hafa greiðslur vegna stöðugleikaeignanna frá framsali þeirra í upphafi árs 2016 til og með 4. nóvember numið kr. 72.158.140.923 (sem er bæði greiðslur inn á stöðugleikareikninginn og innstæður á reikningum dótturfélaga), en þess má geta að áætlanir í upphafi gerðu ráð fyrir að greiðslur vegna þeirra myndi nema samtals kr. 68.000.000.000 þann 31.12.2016.

Ríkissjóður Íslands hefur samtals ráðstafað kr. 51.000.000.000 til niðurgreiðslu skulda það sem af er ári. Samtals nam því fjárhæð innstæðu á stöðugleikareikningi Ríkissjóðs Íslands ásamt innstæðu í dótturfélögum sem hluti af stöðugleikaeignum þann 4. nóvember 2016  kr. 21.158.140.923.

Miðað við fyrrgreindar forsendur mun Lindarhvoll ehf. þá hafa náð markmiðum sínum fyrr en gert var ráð fyrir í upphaflegum áætlunum og mun starfsemi þess í árslok 2017 vera mjög óveruleg og snúa fyrst og fremst að almennum lagalegum frágangi félagsins ásamt því að ljúka uppgjöri á varasjóðum slitabúanna sem ljúka skal í síðasta lagi í árslok 2018.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics