Hoppa yfir valmynd

7 milljónir í neyðaraðstoð til Haítí

Utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, hefur ákveðið að veita um sjö milljónum ísl. kr. til neyðaraðstoðar Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) á Haítí. Þörf er á umfangsmikilli neyðar- og mannúðaraðstoð til handa öllum þeim mannfjölda, sem nú býr við mikla neyð, matarskort, lyfjaskort og skort á húsaskjóli í kjölfar jarðskálftans á Haíti fyrr í vikunni.

Matvælastofnunin e r leiðandi í neyðar- og mannúðaraðstoð á Haíti. Hefur stofnunin nú sent aðildarríkjum S. þ. óskir um framlög til verkefnisins. Fyrstu áætlanir WFP gera ráð fyrir, að kostnaður þessa neyðarstarfs verði 246 milljónir Bandaríkjadala og því sé mikil þörf á fjárframlögum sem fyrst.



Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics