Hoppa yfir valmynd

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst 28. janúar

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 6. mars 2010, hefst á morgun, 28. janúar. Greidd verða atkvæði um framtíðargildi laga nr. 1/2010 um breytingu á lögum nr. 96/2009 um ríkisábyrgð Tryggingasjóðs innistæðueigenda í tengslum við Icesave-reikningana svokölluðu.

Utankjörfundaratkvæðagreiðslan fer fram í öllum sendiráðum Íslands erlendis og aðalræðisskrifstofum Íslands í New York, Winnipeg, Shanghai og Þórshöfn í Færeyjum. Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar eftir samkomulagi hjá kjörræðismönnum Íslands erlendis, samanber meðfylgjandi lista. Búist er við því að kosið verði á u.þ.b. 235 stöðum í 84 löndum. Væntanlegum kjósendum er vinsamlegast bent á að hafa samband við ræðismenn áður en þeir koma til að kjósa. Hagnýtar upplýsingar um kosningarnar er að finna á vefsetrinu: www.kosning.is

Athygli kjósenda er vakin á því, að þeim ber sjálfum að annast og kosta sendingu atkvæðabréfs síns og tryggja þannig að það berist í tæka tíða til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi.



Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics