Hoppa yfir valmynd

Mikill áhugi á reynslu Íslands

Lilja ræðir efnahagsmál á fundi hagfræðinga í Washington. - mynd

Aðgerðir Íslands í kjölfar fjármálaáfallsins 2008 og efnahagsárangurinn sem náðst hefur á undanförnum árum var inntakið í fyrirlestri sem Lilja Alfreðsdóttir, utanríkisráðherra, hélt fyrir bandaríska hagfræðinga í The National Economists Club í Washington í gær. Í fyrirlestrinum fór Lilja yfir aðdraganda og áhrif fjármálaáfallsins, til hvaða aðgerða íslensk stjórnvöld hafa gripið á undanförnum átta árum og hverju þær hafa skilað.

,,Við finnum víða fyrir miklum áhuga, bæði á einstökum aðgerðum og þeirri aðferðafræði sem verið hefur leiðarljósið í vinnu okkar undanfarin ár; að tryggja skilyrðislausa greiðslugetu ríkissjóðs Íslands ásamt því að grípa til aðgerða svo greiðslujöfnuður þjóðarbúsins sé sjálfbær."

Í fyrirlestrinum setti Lilja aðgerðirnar í alþjóðlegt samhengi og fjallaði m.a. um áhrif ytri aðstæðna, sem hafa um margt verið hagfelldar ásamt því að vöxtur ferðamannaþjónustu á Íslandi hafi skilað þjóðarbúinu miklu.

,,Staða Íslands vekur talsverða athygli, enda var hún grafalvarleg fyrir aðeins fáeinum árum. Það er mín skoðun að réttar stefnumótandi ákvarðanir hafi verið teknar á öllum stigum málsins, samhliða því sem hagkerfið hefur einnig notið góðs af hagfelldum ytri aðstæðum."

The National Economists Club í Washington er vettvangur hagfræðinga til að skiptast á skoðunum um efnahagsmál, viðskipti og pólitíska stefnumótun, bæði á fræðilegum og hagnýtum grunni.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics