Hoppa yfir valmynd

Utanríkisráðherra ávarpar Breta búsetta á Íslandi

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ávarpaði í gær borgarafund fyrir Breta búsetta á Íslandi í boði breska sendiherrans Michael Nevin, en efnt var til fundarins af hálfu breska sendiráðsins til að ræða málefni Brexit og sér í lagi réttindi breska borgara á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) eftir útgöngu Breta úr Evrópusambandinu (ESB). Í ávarpi sínu fór Guðlaugur Þór yfir það mikla samráð sem ætti sér stað milli íslenskra og breskra stjórnvalda vegna Brexit og að bæði ríki litu til framtíðar. Sagði utanríkisráðherra jafnframt að það væri mikill pólitískur vilji til þess að réttindi borgara á EES-svæðinu yrðu ekki fyrir borð borin í kjölfar Brexit og ætti það við alla samningsaðila. Sagði hann réttindi borgaranna vera forgangsmál í þeim viðræðum sem fram færu og sagðist sannfærður um að lausn muni fást í að tryggja réttindi Breta sem búa og starfa á Íslandi og Íslendinga sem búa og starfa í Bretlandi. Vísaði utanríkisráðherra til þess að nýlega var haldinn fundur embættismanna bresku stjórnsýslunnar með sérfræðingum frá EES-EFTA ríkjunum í London þar sem áttu sér stað jákvæðar umræður um málefni á borð við búseturétt, réttinn til almannatrygginga og gagnkvæma viðurkenningu á starfsréttindum. Hafa allir aðilar lýst yfir vilja sínum til þess að tryggja stöðu og réttindi breskra ríkisborgara sem búa á Íslandi, í Noregi og Liechtenstein, sem og réttindi ríkisborgara EFTA-ríkjanna þriggja innan EES sem búsettir eru í Bretlandi.

Ávarp ráðherra

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics