Hoppa yfir valmynd

Sektir fyrir brot gegn sóttvarnalögum vegna COVID-19

  - myndHaraldur Jónasson / Hari

Vegna ákvörðunar heilbrigðisráðherra um opinberar sóttvarnaráðstafanir í samræmi við sóttvarnalög nr. 19/1997, sem eru viðbrögð við COVID-19 heimsfaraldrinum, hefur ríkissaksóknari sent öllum lögreglustjórum á landinu fyrirmæli vegna brota á reglum heilbrigðisráðherra sem fjalla um samkomubann, lokun samkomustaða og starfsemi, sem og um einangrun smitaðra og um sóttkví.

Eins og fram kemur í tilkynningu frá ríkissaksóknara um málið var við vinnslu fyrirmælanna m.a. litið til þess hvernig ríkissaksóknaraembætti á Norðurlöndunum hafa brugðist við þeim aðstæðum sem skapast hafa vegna COVID-19. Enn fremur segir í tilkynningunni:

„Að meginstefnu til byggja fyrirmæli ríkissaksóknara á því að sektum verði beitt vegna brota á sóttvarnalögum og reglum settum samkvæmt þeim. Sektarfjárhæðir fara eftir alvarleika hvers brots.

Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir mjög mikilvægt að það sé alveg skýrt til hvaða úrræða lögregla getur gripið ef farið er gegn ákvörðunum heilbrigðisráðherra um sóttvarnaáðstafanir. Enn sem komið er hafi tilkynningar til lögreglu vegna brota á opinberum sóttvarnaáðstöfunum verið fáar, sem sé til marks um samstöðu í samfélaginu um þýðingu og mikilvægi þessara aðgerða."

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics