Hoppa yfir valmynd

Greiðsluafkoma ríkissjóðs fyrstu ellefu mánuði ársins 2001. Greinargerð 19. desember 2001

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar - nóvember 2001 (PDF 25K)

Nú liggja fyrir tölur um afkomu ríkissjóðs fyrstu ellefu mánuði ársins. Uppgjörið hér á eftir sýnir sjóðhreyfingar og er sambærilegt við almenn sjóðstreymisyfirlit. Tölurnar eru því ekki sambærilegar við ríkisreikning eða fjárlög ársins sem eru sett fram á rekstrargrunni.

Heildaryfirlit
Fyrstu ellefu mánuði ársins var handbært fé frá rekstri neikvætt um tæpa 4 milljarða króna, samanborið við 8,9 milljarða króna jákvæða stöðu í fyrra. Heildartekjur ríkissjóðs hækka um 12 milljarða króna frá sama tíma í fyrra, einkum vegna aukinnar innheimtu skatta á launatekjur. Útgjöld hækka hins vegar um tæplega 25 milljarða króna, eða 14%. Þar munar mestu um áhrif kjarasamninga og gengisþróunar eða á bilinu 6 til 7 milljarðar króna. Greiðslur til fæðingarorlofssjóðs voru 2,3 milljarðar og hækkun framlaga til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga nam 1,9 milljörðum króna. Þá nemur hækkun vaxtagreiðslna um 0,8 milljörðum, sérstakar greiðslur til öryrkja nema 1,3 milljörðum króna, 1 milljarður stafar af auknum greiðslum til Tryggingastofnunar ríkisins vegna lífeyristrygginga. Þá voru 0,8 milljarðar nýttir til uppkaupa á fullvirðisrétti bænda. Rétt er að vekja athygli á að sérstakar greiðslur til öryrkja komu til gjalda á rekstrargrunni síðastliðnu ári, þó svo að þær hafi áhrif á greiðslur þessa árs.


Hreinn lánsfjárjöfnuður var neikvæður um 22,7 milljarða króna sem er rúmlega 30 milljörðum króna lakara en í fyrra. Skýringin er, auk þess sem áður er nefnt, að í ár var 16 milljörðum króna ráðstafað til Seðlabanka Íslands í því skyni að styrkja gjaldeyrisstöðuna. Á fyrstu ellefu mánuðum þessa árs hafa verið greiddir tæplega 12 milljarðar króna til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins til lækkunar á framtíðarskuldbindingum ríkissjóðs.

Tekjur
Heildartekjur ríkissjóðs námu rúmlega 196 milljörðum króna á fyrstu ellefu mánuðum ársins. Hækkunin milli ára nemur 12 milljörðum króna, eða um 6S%. Skatttekjur hækka ívið minna, eða um 6%. Til samanburðar má nefna að hækkun skatttekna á sama tíma í fyrra nam tæplega 11% og 16% árið þar á undan.


Aukin innheimta skatta á launatekjur einstaklinga skýrir að langmestu leyti tekjuauka ríkissjóðs frá fyrra ári. Hækkun launa milli ára skiptir hér mestu máli. Eignarskattar hækka einnig nokkuð frá fyrra ári sem endurspeglar fyrst og fremst hækkun fasteignaverðs á síðasta ári.

Skattar á vörur og þjónustu skila hins vegar nánast sömu tekjum í krónum talið og á sama tíma í fyrra. Þetta er sama þróun og gætt hefur allt þetta ár og endurspeglar umtalsverðan samdrátt að raungildi milli ára, eða sem nemur um 6S%. Sem fyrr má einkum rekja þessa þróun til veru-legs sam-dráttar í neysluútgjöldum milli ára, ekki síst í kaupum á bílum og ýmsum varanlegum neysluvörum, svo sem heimilistækjum. Virðisaukaskattur hefur þó heldur tekið við sér upp á síðkastið og skilar nú rúmlega 1 milljarði króna meiri tekjum en í fyrra. Á móti vegur að vörugjöld af inn-flutningi bifreiða hafa lækkað um 40% milli ára, eða sem nemur tæplega 2 milljörðum króna. Vörugjöld af öðrum innfluttum vörum skila einnig minni tekjum en í fyrra.

Aðrar tekjur ríkissjóðs hækka um nálægt 1S milljarð króna milli ára sem fyrst og fremst má rekja til hækkunar vaxtatekna vegna verðlags- og gengisbreytinga.

Gjöld
Heildargreiðslur ríkissjóðs námu 200,4 milljörðum króna fyrstu ellefu mánuði ársins. Gjöldin hækka um 24,8 milljarða frá fyrra ári og vega þar sjö tilefni þyngst, sbr. umfjöllun í yfirlitskaflanum hér að framan.

Almenn mál. Útgjöld til almennra mála, hækka um tæpar 900 m.kr. eða 4,4% milli ára. Af einstökum hækkunartilefnum munar mestu um kaup á nýjum upplýsingakerfum ríkisins en um 470 m.kr. hafa verið greiddar vegna endurnýjunar kerfanna. Þá hækka greiðslur til utanríkisþjónustunnar um 370 m.kr. mili ára eða 13%, þar vegur lægri stofnkostnaður á móti hækkunaráhrifum gengislækkunar íslensku krónunnar. Greiðslur vegna æðstu stjórnar ríkisins lækka um 460 m.kr., m.a. vegna þess að á síðasta ári urðu töluverð útgjöld vegna 1000 ára afmælis kristnitökunnar sem ekki koma til í ár. Greiðslur löggæslu- og öryggismála hækka um 450 m.kr., eða aðeins 5,1%, þrátt fyrir tæplega 800 m.kr. hækkun til reksturs löggæslu og dómstóla þar sem á móti vegur 670 m.kr. lækkun á greiðsluþörf Ofanflóðasjóðs til byggingar snjóflóðavarnargarða.


Félagsmál. Um 60% af útgreiðslum á tímabilinu runnu til ýmissa félagsmála, svo sem fræðslu- menningar-, heilbrigðis- og tryggingamála. Útgjöld til þessa málaflokks hækka í heild um 15,7 milljarða króna milli ára. Hækkun vegna fræðslumála nam 3 milljörðum króna. Þar af hækka greiðslur til framhalds- og sérskóla um 1.550 m.kr. eða 23,6%, sem m.a. skýrist af viðbótaryfirvinnu eftir lok verkfalls framhaldsskólakennara, auk launahækkana í kjölfar kjarasamnings. Af einstökum málum munar mestu um rúmlega 400 m.kr. hækkun greiðslna til Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Þá hækka greiðslur til Háskóla Íslands um 330 m.kr. Loks hækka greiðslur vegna menningar- og kirkjumála um 850 m.kr. milli ára. Þar af eru 320 m.kr. vegna kirkjumála og 300 vegna safnastofnana.

Framlög til heilbrigðismála nema 49,7 milljörðum króna og hækka um 4,5 milljarða króna. Þar munar mestu um rekstrarframlög til sjúkrastofnana sem hækka um 2,9 milljarða króna, eða 12% milli ára. Þar af eru 2,1 milljarður hjá stóru sjúkrahúsunum í Reykjavík og á Akureyri. Hlutfallslega er þó mesta hækkunin hjá öldrunar- og endurhæfingarstofnunum, 1,1 milljarður króna, eða 15,8%. Er það að mestu í samræmi við áætlanir fjárlaga þar sem ný hjúkrunarheimili bættust við á tímabilinu, auk þess sem daggjöld hafa hækkað.

Greiðslur almannatrygginga hækka um tæpa 4 milljarða, eða 19,3%. Greiðslur vegna lífeyristrygginga og bóta skv. lögum um félagslega aðstoð hækka um 3,1 milljarð milli ára. Þar munar mestu um áður greinda 1.300 m.kr. greiðslu vegna dóms Hæstaréttar í málefnum öryrkja, auk breytinga á lögum um almannatryggingar sem leiða til frekari hækkunar. Ný lög um fæðingarorlof hafa leitt til 2.340 m.kr. greiðslu það sem af er árinu. Greiðslur til Atvinnuleysistryggingasjóðs hækka um 180 m.kr. milli ára og endurspeglar hækkun bóta þar sem atvinnuleysi það sem af er árinu er nánast óbreytt frá því í fyrra, eða 1,4%.

Atvinnumál. Útgjöld til atvinnumála hækka samtals um 4,6 milljarða króna, sem er 17% hækkun frá því í fyrra. Greiðslur til samgöngumála hækka um 1,9 milljarða króna. Þar af er 1,2 milljarða króna. hækkun til Vegagerðarinnar og tæplega 700 m.kr. til Siglingastofnunar. Hækkanirnar eru í samræmi við vega- og hafnaáætlanir. Greiðslur landbúnaðarmála hækka um 1,9 milljarða. Af einstökum tilefnum munar mestu um uppkaup ríkisins á fullvirðisrétti bænda, en 800 m.kr. eingreiðsla fór til þess verkefnis í ársbyrjun.

Vaxtagreiðslur hækka um 750 m.kr., eða 9,7%. Mestu munar um áhrif gengislækkunar krónunnar, en vaxtagjöld vegna erlendrar lántöku hækka um 1,4 milljarða króna. Greiðslur vaxta vegna spariskírteina lækka hins vegar 0,8 milljarða milli ára.

Önnur útgjöld hækka um 2,9 milljarða króna milli ára, eða 45,3% að mestu vegna tveggja tilefna. Greiðslur til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hækka um 1,9 milljarða og greiðslur uppbóta á lífeyri sem renna til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins hækka um rúmar 800 m.kr.

Lánahreyfingar
Fjármunahreyfingar voru neikvæðar um 18,7 milljarða króna fyrstu ellefu mánuði ársins, en á sama tíma í fyrra voru þær í jafnvægi. Munar mestu um ráðstöfun á 16 milljörðum króna í formi lánveitingar til Seðlabanka Íslands, í því skyni að bæta gjaldeyrisstöðuna.

Afborganir lána ríkissjóðs námu 22,3 milljörðum króna og eru tæplega 15 milljarðar vegna erlendra lána. Í febrúar var á innlausn flokkur spariskírteina frá árinu 1990 og nam innlausnarvirðið um 9 milljörðum króna, en þar af voru afborganir 5 milljarðar. Auk þess hafa spariskírteini verið forinnleyst úr þremur spariskírteinaflokkum fyrir 4 milljarða króna að innlausnarvirði. Þar af nema afborganir 2,4 milljörðum. Uppkaup með þessum hætti beinast að þeim flokkum spariskírteina sem ekki eru nægilega seljanlegir á eftirmarkaði eða stutt eftir að gjalddaga þeirra.

Ákveðið hefur verið að ráðstafa hluta lánsfjárafgangs ríkissjóðs til greiðslu lífeyrisskuldbindinga hans hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Greiðslur til sjóðsins námu 11,9 milljörðum króna samanborið við 5,5 milljarða í fyrra.

Lántökur ríkisins námu um 65,2 milljörðum króna. Þar af voru erlendar lántökur 48,7 milljarðar, en um 26,9 milljarða króna lán var tekið í október til þess að styrkja erlenda stöðu Seðlabankans auk þess að leggja bankanum til aukið stofnfé í samræmi við ný lög um Seðlabanka Íslands er gera ráð fyrir eflingu eiginfjárstöðu hans. Önnur erlend lántaka hefur runnið til endurfjármögnunar erlendra skulda og vaxtagreiðslna. Það sem af er árinu hefur stofn ríkisvíxla stækkað um 10 milljarða króna, auk þess sem seld hafa verið ríkisbréf í nýjum 6 ára flokki fyrir um 6,4 milljarða króna.


Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics