Hoppa yfir valmynd

Fitch breytir horfum um lánshæfi ríkissjóðs í jákvæðar

Matsfyrirtækið Fitch birti í dag lánshæfismat fyrir ríkissjóð. Horfur eru nú jákvæðar en voru áður metnar stöðugar. Langtímaeinkunnir í erlendri og innlendri mynt voru staðfestar óbreyttar í BBB+. Að mati Fitch hefur dregið verulega úr veikleika gagnvart ytri áföllum  með styrkingu krónunnar og uppbyggingu óskuldsetts gjaldeyrisforða Seðlabankans, en einnig hafa lækkandi skuldahlutfall hins opinbera og kröftugur hagvöxtur áhrif á breyttar horfur.

Það sem helst gæti haft áhrif á lánshæfismat ríkissjóðs til hækkunar eru áframhaldandi hagvöxtur án þess að komi til efnahagslegs ójafnvægis, frekari viðnámsþróttur gegn erlendum áföllum með frjálsu fjármagnsflæði og áframhaldandi lækkun skuldahlutfalls með skynsamlegri ríkisfjármálastefnu.

Ofhitnun hagkerfisins vegna víxlverkunar launa og verðlags, verðbólguskot, mikið fjármagnsútflæði sem myndi leiða til þrýstings á gengi krónunnar og ytra ójafnvægis eða slaki í ríkisfjármálum gæti aftur á móti leitt til lækkunar lánshæfismatsins.

Þess má geta að matsfyrirtækið breytti horfum á lánshæfi ríkissjóðs í jákvæðar í janúar 2015 og í júlí sama ár var lánshæfismatið hækkað og horfur metnar stöðugar. 

 

 

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics