Hoppa yfir valmynd

Nr. 053, 6. júní 2001 Blaðamannafundur um Konur og lýðræði

FRÉTTATILKYNNING

frá utanríkisráðuneytinu

________




Nr. 53


Davíð Oddsson, forsætisráðherra og Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra boða til blaðamannafundar í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu kl. 16 í dag, 6. júní 2001.

Á fundinum munu ráðherrarnir kynna framhaldsráðstefnu um konur og lýðræði sem haldin verður í Vilníus í Litháen 15.-17. júní næstkomandi. Ráðstefnan í Vilníus er framhald ráðstefnunnar Konur og lýðræði við árþúsundamót sem haldin var í Reykjavík 8.-10. október 1999 í samvinnu við bandarísk stjórnvöld og Norrænu ráðherranefndina.



Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 6. júní 2001.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics