Hoppa yfir valmynd

Drög að eigandastefnu fyrir fjármálafyrirtæki birt til umsagnar

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur útbúið drög að uppfærðri eigandastefnu fyrir fjármálafyrirtæki og er umsagna um stefnuna óskað.

Eigandastefna fyrir fjármálafyrirtæki sem ríkissjóður á eignarhluti í, og Bankasýsla ríkisins fer með samkvæmt lögum, var sett fram árið 2009 og tók þá til nýju viðskiptabankannna þriggja og nokkurra sparisjóða sem þá voru að hluta til í eigu ríkissjóðs. Hún gildir nú fyrir fjögur fjármálafyrirtæki: Landsbankann, Íslandsbanka, Arion banka og Sparisjóð Austurlands.

Eigandastefnan endurspeglaði stöðuna eftir endurreisn fjármálakerfisins og aðstæður í ríkisfjármálum og á fjármálamarkaði á þeim tíma. Staða hagkerfisins og ríkisfjármála er nú gjörbreytt til hins betra.  Einnig hefur eignarhald ríkisins í fjármálafyrirtækjum tekið grundvallarbreytingum og á ríkið nú meirihluta bankakerfisins. Þá hefur Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, gefið út nýjar leiðbeiningar um stjórnarhætti ríkisfyrirtækja. Því er orðið tímabært að uppfæra eigandastefnu fyrir fjármálafyrirtæki í eigu ríkisins.

Samkvæmt hjálögðum drögum að endurskoðaðri eigandastefnu falla niður ýmsar áherslur sem mótaðar voru í kjölfar endurreisnar fjármálakerfisins.  Í stað þeirra er lögð áhersla á að fjármálafyrirtæki veiti viðskiptavinum sem skilvirkasta þjónustu og tryggi ásættanlega arðsemi. Skerpt er á ákvæðum um stjórnarhætti, upplýsingagjöf, gagnsæi og fagleg vinnubrögð. Undirstrikuð er sú skylda stjórna að fara að ákvæðum eigandastefnunnar og upplýsa eiganda í þeim tilvikum sem slíkt er ekki talið hægt eða ef stjórn verður þess áskynja að ekki hefur verið farið eftir þeim.

Skilgreind eru markmið um einstök fjármálafyrirtæki í eigu ríkisins og eignarhald þeirra:

Landsbankinn hf. (98,2% eignarhlutur ríkisins)

  • Stefnt er að því að ríkissjóður eigi verulegan eignarhlut, 34-40%, til langframa í því skyni að stuðla að stöðugleika í fjármálakerfi landsins og tryggja nauðsynlega innviði þess.
  • Eignarhlutur ríkisins í bankanum verði að öðru leyti seldur á næstu árum þegar hagfelld og æskileg skilyrði eru fyrir hendi og jafnframt verði stefnt að skráningu á hlutabréfamarkað. 

Íslandsbanki hf. (100% eignarhlutur ríkisins)

  • Stefnt er að því að selja allan eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka þegar hagfelld og æskileg skilyrði eru fyrir hendi.
  • Ríkið eignaðist 100% í Íslandsbanka sem hluta af stöðugleikaframlagi Glitnis við uppgjör slitabúsins. Eignarhald ríkisins á Íslandsbanka byggist á lögum nr. 60/2015, um stöðugleikaskatt, og skal því arðgreiðslum og söluandvirði bankans ráðstafað til niðurgreiðslu skulda ríkissjóðs.

Arion banki hf. (13% eignarhlutur ríkisins)

  • Stefnt er að því að selja allan eignarhlut ríkisins þegar hagfelld og æskileg skilyrði eru fyrir hendi og mun salan að öllum líkindum eiga sér stað í tengslum við sölu meirihlutaeigandans og skráningu bankans á hlutabréfamarkað.
  • Ríkissjóður á um 84 ma.kr. skuldabréf á Kaupþing ehf. með veði í 87% hlut í Arion. Verði skuldabréfið ekki greitt lok janúar 2018 færist Arion banki að öllu leyti til ríkisins. Einnig er í gildi ábataskiptasamningum sem felur í sér greiðslur til ríkissjóðs seljist Arion banki á tilteknu verði.

 Sparisjóður Austurlands hf. (49,5% eignarhlutur ríkisins)

  • Stefnt er að því að selja allan eignarhlut ríkisins um leið og hægt er enda ekki markmið ríkisins að vera eigandi sparisjóðsins til langframa.

Umsagnarfrestur er til og með 10. mars 2017. Umsagnir óskast sendar á [email protected]

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics