Hoppa yfir valmynd

Háskólafundaröð: Ísland á alþjóðavettvangi - erindi og ávinningur

Utanríkisráðherra með háskólarektorum
Utanríkisráðherra með háskólarektorum

Næst á dagskrá:

Þátttaka Íslands í friðargæslu - af hverju?

Málþing í Háskólanum á Bifröst

Föstudaginn 19. október kl. 10.30 - 13.00

Á málþinginu verður fjallað um alþjóðlega friðargæslu frá ólíkum sjónarhornum og þátttöku Íslands í henni. Á undanförnum árum hafa Íslendingar fengið umtalsverða reynslu af störfum á átaka- og hamfarasvæðum. Þessir aðilar hafa starfað á vettvangi alþjóðastofnana eins og Rauða krossins, ÖSE og Sameinuðu þjóðanna, og á síðustu árum hafa margir starfað fyrir Íslensku friðargæsluna víða um heim. Á málþinginu verður spurt hvers eðlis íslensk friðargæsla er og hvert ber að stefna? Hvað má læra af reynslunni og hvernig getur hún nýst Íslandi í framtíðinni þ.á.m. við þátttöku í alþjóðlegum verkefnum á borð við hugsanlegra setu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna?

Dagskrá

Anna Jóhannsdóttir, forstöðumaður Íslensku friðargæslunnar

Stefnumörkun og reynsla friðargæslunnar

Davíð Logi Sigurðsson, blaðamaður

Framboð og friðargæsla - hvaða hlutverki gegna blaðamenn?

Jónas G. Allansson, friðargæsluliði og mannfræðingur

Á vettvangi friðargæslu í Afganistan og Sri Lanka

Guðni Th. Jóhannesson, sérfræðingur við Háskólann í Reykjavík

Viðbrögð við erindum fyrirlesara 

Jón Ólafsson, forseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst, stjórnar umræðum.

 

 Allir Velkomnir!

 

Íslensk stjórnvöld efna til fundaraðarinnar í samvinnu við alla háskóla landsins. Fundir eru haldnir mánaðarlega og lýkur með ráðstefnu með þátttöku erlendra fræðimanna vorið 2008.

Nánari upplýsingar um háskólafundaröðina



Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics