Hoppa yfir valmynd

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna sveitarstjórnarkosninga 29. maí 2010 hafin

Utankjörfundaratkvæðagreiðslan fer fram í öllum sendiráðum Íslands erlendis og aðalræðisskrifstofum Íslands í New York, Winnipeg, Shanghai og Þórshöfn í Færeyjum. Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar eftir samkomulagi hjá kjörræðismönnum Íslands erlendis, samanber meðfylgjandi lista. Búist er við því að kosið verði á u.þ.b. 235 stöðum í 84 löndum. Væntanlegum kjósendum er vinsamlegast bent á að hafa samband við ræðismenn áður en þeir koma til að kjósa. Hagnýtar upplýsingar um kosningarnar er að finna á vefsetrinu: www.kosning.is

Athygli kjósenda er vakin á því, að þeim ber sjálfum að annast og kosta sendingu atkvæðabréfs síns og tryggja þannig að það berist í tæka tíða til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi.


Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics