Hoppa yfir valmynd

Nr. 003, 26. febrúar 2001 Samningaviðræðum EFTA-ríkjanna og Króatíu um fríverslun lokið

FRÉTTATILKYNNING

frá utanríkisráðuneytinu

________




Nr. 003


Samningaviðræðum EFTA ríkjanna og Króatíu um fríverslun sem staðið hafa yfir að undanförnu er nú lokið. Samningur þess efnis var áritaður í Genf s.l. föstudag, þann 23. febrúar. Stefnt er að því að utanríkisráðherrar ríkjanna undirriti þennan fríverslunarsamning í Vaduz í Liectenstein í júní n.k. Samningurinn er sá 17. í röð fríverslunarsamninga sem EFTA-ríkin hafa gert við þriðju ríki og felur hann í sér fríverslun með iðnaðarvörur, sjávarafurðir og tilteknar landbúnaðarafurðir.



Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 26. febrúar 2001.



Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics